Fotbolti.net
18.02.20 - 23:05
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Henderson haltraði fram hjá fjölmiðlamönnum

Henderson fór meiddur af velli.

Henderson fór meiddur af velli.

Canon

Mynd: Getty Images

Jordan Henderson, fyrirliði Liverpool, fór meiddur af velli þegar Liverpool tapaði 1-0 gegn Atletico Madrid í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld.
Fjölmiðlamennirnir James Pearce og Neil Jones segja að fyrirliðinn hafi haltrað er hann gekk fram hjá fjölmiðlamönnum eftir leikinn.

Meiðslin eru aftan á læri og mun Henderson gangast undir skoðun á næstunni.

„Við verðum að bíða. Hann hafði ekki of miklar áhyggjur, en það var nóg til þess að hann þurfti að fara út af," sagði Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, eftir leikinn í Madríd í kvöld.

Það er vonandi fyrir Liverpool að meiðsli Henderson séu ekki alvarleg því hann hefur átt stórgott tímabil.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.