Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   þri 18. febrúar 2020 18:10
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Segir af sér út af ásökunum um að hafa látið N-orðið falla
Hollendingurinn Ron Jans hefur látið af störfum sem þjálfari FC Cincinnati í MLS-deildinni. Rannsókn stendur nú yfir hvort að Jans hafi látið frá sér N-orðið.

Jans er sagður hafa látið N-orðið falla þegar hann söng með lagi sem var í gangi í búningsklefanum. Leikmaður Cincinnati er talinn hafa látið Jans vita hversu mikla þýðingu orðið hefur í Bandaríkjunum.

Á vefsíðu Guardian kemur einnig fram að Jans hafi látið frá sér óviðeigandi ummæli um þrælahald þegar liðið heimsótti minnngarvott Washington DC í október.

Jans tók við Cincinnati í ágúst, undir lok fyrsta tímabils liðsins í MLS-deildinni. Hann sendi frá sér yfirlýsingu í dag þar sem hann þakkaði fyrir tíma sinn í Cincinnati og baðst afsökunar á því að „sagan þyrfti að enda svona."

Jans er 61 árs gamall og hefur þjálfað félög í Hollandi og Belgíu, auk Cincinnati.
Athugasemdir
banner