fim 18. febrúar 2021 21:35
Aksentije Milisic
Kean staðið sig vel hjá PSG - Everton mun biðja um 70 milljónir punda
Mynd: Getty Images
Everton mun biðja um 70 milljónir punda fyrir Moise Kean ætli sér eitthvað lið að kaupa hann.

Kean kom til Everton árið 2019 frá Juventus fyrir 27,5 milljónir punda en hann náði einungis að skora tvisvar sinnum á sínu fyrsta tímabili með Everton.

Honum hefur hins vegar gengið mjög vel á þessari leiktíð hjá PSG og hefur hann gert 14 mörk í öllum keppnum til þessa. Hann skoraði eitt mark í vikunni þegar PSG fór illa með Barcelona í Meistaradeild Evrópu.

Samkvæmt Fabrizio Romano, mun Everton vilja allt að 70 milljónir punda fyrir leikmanninn en hann á þrjú ár eftir af samningi sínum hjá þeim bláklæddu.

Kean hefur spilað reglulega fyrir PSG þrátt fyrir að liðið sé stjörnuprítt og ljóst að PSG verður líklega ekki eina liðið sem mun hafa áhuga á að kaupa leikmanninn þegar lánstímabili hans í Frakklandi lýkur.
Athugasemdir
banner
banner
banner