Theodór Elmar Bjarnason var á varamannabekk Lamia sem spilaði gegn Apollon Smyrnis í grísku úrvalsdeildinni í kvöld.
Lamia, sem er í næst neðsta sæti deildarinnar, vann góðan útisigur á Apollon en heimamenn eru í níunda sætinu.
Bachana Arabuli gerði eina mark leiksins úr vítaspyrnu í fyrri hálfleik og því mikilvægur sigur gestanna staðreynd. Þess má geta að Lamia hefur einungis spilað 19 leiki á meðan flest öll önnur lið deildarinnar hafa spilað 22.
Theodór Elmar kom inn á hjá Lamia í uppbótartíma. Næsti leikur Lamia er gegn PAOK á sunnudaginn kemur.
Athugasemdir