Fotbolti.net
18.04.21 - 11:21
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Lacazette: Ekki auðvelt, Auba bjargaði okkur í fyrra

Lacazette: Ekki auðvelt, Auba bjargaði okkur í fyrra
Canon

Mynd: Getty Images

Pierre-Emerick Aubameyang hefur verið langt frá sínu besta með Arsenal á leiktíðinni. Fyrirliðinn hefur verið harðlega gagnrýndur og segir Alexande Lacazette, samherji Aubameyang, erfitt að heyra þessa gagnrýni.
„Hann er veikur þessa stundina, það er ekki auðvelt að hlusta á gagnrýnina, hann hefur gert svo mikið fyrir félagið og bjargaði okkur á síðasta tímabili. Hann er frábær markaskorari og mér finnst við ekki geta gagnrýnt leikmann eins og Auba út af gengi hans að undanförnu," sagði Lacazette við Sky Sports.

„Mér finnst hann ekki hafa verið það slakur að undanförnu og mér finnst sumir vera of harðir við hann," sagði Lacazette.

Arsenal mætir Fulham í leik sem hefst klukkan 12:30. Aubameyang hefur ekki tekið þátt í síðustu tveimur leikjum Arsenal vegna veikinda. Hann skoraði síðast fyrir Arsenal gegn Burnley þann 6. mars.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City9+1021
2Arsenal8+821
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool8+315
6Brentford9+714
7Bournemouth9+112
8Tottenham9012
9Aston Villa9-312
10Hull City9+111
11Leeds9+111
12Newcastle8-211
13Ipswich Town9-411
14Everton8-110
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.