Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   sun 18. apríl 2021 20:00
Aksentije Milisic
Sjáðu slysalegt sjálfsmark Handanovic gegn Napoli
Mynd: Getty Images
Þessa stundina eigast við Napoli og Inter Milan í Serie A deildinni á Ítalíu.

Inter er með góða forystu í efsta sæti deildarinnar og virðist fátt geta komið í veg fyrir það að liðið vinni deildina.

Napoli er í mikillri baráttu um sæti í Meistaradeild Evrópu og sigri liðið í dag fer það upp fyrir Juventus og í fjórða sætið.

Þegar þetta er skrifað er staðan 1-0 fyrir heimamönnum í Napoli en markið var í skrautlegri kantinum.

Lorenzo Insigne átti þá sprett upp að endamörkum sem endaði með fyrirgjöf. Samir Handanovic, markvörður Inter, virtist þá vera búinn að grípa knöttinn en þá kom Stefan de Vrij, varnamaður Inter, á fleygiferð í Handanovic.

Handanovic missti þannig knöttinn í netið en þetta skrautlega sjálfsmark má sjá hérna.
Athugasemdir
banner
banner
banner