Fotbolti.net
18.04.21 - 20:53
Aksentije Milisic

Spánn: Real Madrid missteig sig í toppbaráttunni

Spánn: Real Madrid missteig sig í toppbaráttunni
Canon

Mynd: EPA

Síðari leikjum dagsins var að ljúka í La Liga deildinni á Spáni en spilað var í 31 umferðinni.
Real Madrid er í mikillri toppbaráttu en þriggja hesta hlaup er um titilinn. Atletico Madrid vann sinn leik fyrr í dag gegn Eibar.

Real heimsótti Getafe en tókst ekki að sigra leikinn. Þetta gæti orðið dýrt fyrir meistarana þegar uppi er staðið. Leiknum lauk með 0-0 jafntefli en lið Real virkaði mjög þreytt í þessum leik.

Real er nú þremur stigum á eftir grönnum sínum í Atletico þegar sjö umferðir eru eftir.

Barcelona er fimm stigum á eftir Atletico og tveimur á eftir Real. Börsungar hafa hins vegar spilað einum leik færra en liðið vann spænska bikarinn í gærkvöldi.

Villareal, sem situr í fimmta sæti deildarinnar, slátraði Levante á útivelli en leiknum lauk með 1-5 sigri gestanna. Tvö sjálfsmörk voru skoruð í leiknum.

Þá skildu Cadiz og Celta Vigo jöfn eins og Real Betis og Valencia.

Getafe 0 - 0 Real Madrid

Cadiz 0 - 0 Celta

Levante 1 - 5 Villarreal
0-1 Sergio Postigo ('9 , sjálfsmark)
0-2 Gerard Moreno ('13 )
1-2 Mickael Malsa ('21 )
1-3 Samuel Chimerenka Chukweze ('63 )
1-4 Ruben Vezo ('72 , sjálfsmark)
1-5 Samuel Chimerenka Chukweze ('75 )

Betis 2 - 2 Valencia
1-0 Nabil Fekir ('12 )
1-1 Goncalo Guedes ('22 )
2-1 Sergio Canales ('42 )
2-2 Carlos Soler ('61 , víti)
Spánn: Real Madrid missteig sig í toppbaráttunni
Canon

Mynd: Getty Images

La Liga - karlar

#LiðLmunStig
1Barcelona13+3636
2Real Madrid13+2233
3Atletico Madrid13+1631
4Betis13+527
5Real Sociedad13022
6Sevilla13-219
7Racing Santander13-1217
8Athletic12+316
9Alaves13016
10Villarreal13+115
11Espanyol13015
12Deportivo13-115
13Osasuna13-1015
14Celta13-113
15Levante13-512
16Vallecano12-712
17Valencia13-1112
18Getafe13-1312
19Elche13-611
20Malaga13-155
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.