Fotbolti.net
18.04.26 - 10:41
Elvar Geir Magnússon

Byrjunarlið Brentford og Fulham: Thiago berst við Haaland um gullskóinn

Thiago hefur skorað 21 mark í deildinni en aðeins Erling Haaland hefur skorað fleiri mörk eða 22.

Thiago hefur skorað 21 mark í deildinni en aðeins Erling Haaland hefur skorað fleiri mörk eða 22.

Canon

Mynd: EPA

Fyrsti leikur dagsins í ensku úrvalsdeildinni er leikur Brentford og Fulham, hádegisleikurinn sem hefst 11:30.

Keith Andrews, stjóri Brentford, stillir upp sama byrjunarliði og gerði 2-2 jafntefli geng Everton í síðustu viku.

Igor Thiago sem er aðeins einu marki frá Erling Haaland í baráttunni um gullskóinn er í fremstu víglínu. Þá er bakvörðurinn Aaron Hickey á bekknum en hann er í fyrsta sinn í hóp síðan í febrúar en hann hefur verið meiddur aftan í læri.

Marco Silva hefur gert fjórar breytingar á liði Fulham frá 2-0 tapinu gegn Liverpool. Ryan Sessegnon, Emile Smith Rowe, Sasa Lukic og Tom Cairney koma inn í liðið fyrir Antonee Robinson, Josh King, Oscar Bobb og Sander Berge.
England í dag - Chelsea mætir Man Utd á Stamford Bridge
TENGT EFNI

England í dag - Chelsea mætir Man Utd á Stamford Bridge

Byrjunarlið Brentford: Kelleher, Van den Berg, Schade, Jensen, Thiago, Yarmoliuk, Ouattara, Collins, Lewis-Potter, Damsgaard, Kayode.

(Varamenn: Valdimarsson, Hickey, Pinnock, Nelson, Ajer, Donovan, Bentt, Shield, Stephenson)

Byrjunarlið Fulham; Leno, Bassey, Andersen, Wilson, Muniz, Cairney, Iwobi, Lukic, Castagne, Sessegnon, Smith Rowe.

(Varamenn: Lecomte, Reed, Jimenez, Bobb, Berge, Chukwueze, King, Diop, Robinson)

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Man City3+59
2Arsenal3+59
3Hull City3+37
4Chelsea3+16
5Brentford3+35
6Liverpool3+25
7Newcastle3+25
8Everton3+25
9Leeds3+15
10Brighton3+34
11Man Utd3+14
12Sunderland304
13Crystal Palace3-43
14Ipswich Town3-43
15Bournemouth3-12
16Nott. Forest3-12
17Aston Villa3-51
18Tottenham3-51
19Fulham3-30
20Coventry3-50
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.