Liverpool og Man Utd berjast um miðjumann - Klopp tekur ekki við Real Madrid - Bayern hefur áhuga á Gordon
   lau 18. apríl 2026 22:20
Brynjar Ingi Erluson
Einkunnir Chelsea og Man Utd: Heaven maður leiksins - Hræðileg innkoma Garnacho
Heaven, besti maður leiksins, er hér með boltann á meðan Garnacho, slakasti maður leiksins, eltir hann
Heaven, besti maður leiksins, er hér með boltann á meðan Garnacho, slakasti maður leiksins, eltir hann
Mynd: EPA
Argentínumaðurinn Alejandro Garnacho fær verstu einkunn allra í 1-0 tapi Chelsea gegn Manchester United á Stamford Bridge í kvöld á meðan Ayden Heaven, varnarmaður United, var valinn maður leiksins.

Sky Sports valdi Heaven, sem var eini leikfæri miðvörður United, besta mann leiksins.

Hann átti fínasta fyrri hálfleik fyrir utan eitt atvik þar sem slapp við brot á Cole Palmer, en í síðari hálfleiknum var hann stórkostlegur í vörninni.

Hann og Bruno Fernandes fá báðir 8 í einkunn, en Sky gaf Heaven vinninginn.

Garnacho, sem kom til Chelsea frá United á síðasta ári, var á meðan slakastur. Hann kom inn af bekknum snemma leiks fyrir meiddan Estevao og tapaði boltanum trekk í trekk og gerði lítið fyrir þá bláu. Sky gaf honum lægstu einkunn.

Chelsea: Sanchez (6), Gusto (6), Fofana (5), Hato (6), Cucurella (5), Caicedo (5), Enzo Fernandez (6), Estevao (5), Palmer (6), Neto (6), Delap (6).
Varamenn: Garnacho (4).

Man Utd: Lammens (6), Dalot (7), Mazraoui (7), Heaven (8), Shaw (7), Casemiro (6), Mainoo (6), Mbeumo (5), Fernandes (8), Cunha (7), Sesko (6).
Slapp
banner
banner
banner