Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 18. maí 2019 19:59
Ívan Guðjón Baldursson
Kompany: Erum besta lið í heimi
Mynd: Getty Images
Vincent Kompany fyrirliði Manchester City var ánægður eftir 6-0 sigur gegn Watford í úrslitaleik enska FA bikarsins.

Man City vann þar með alla mögulega titla í enska boltanum á tímabilinu, en þetta er í fyrsta sinn sem það gerist frá upphafi enska boltans.

„Þetta var ekki eins auðvelt og lokatölurnar gefa í skyn en við vorum frábærir. Þvílíkt tímabil. Þvílíkt félag," sagði Kompany.

„Þetta byrjaði hjá stjóranum. Hann gaf það skýrt til kynna að við yrðum að vinna úrvalsdeildina annað árið í röð og við gerðum það.

„Þetta er besta lið í heimi að mínu mati. Að spila á þessu gæðastigi í svona langan tíma er merkilegt. Við erum búnir að spila ótrúlega vel í þessi tvö ár og það eru forréttindi að vera partur af liðinu."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner