Í kvöld klukkan 19:00 mætast Englendingar og Skotar í riðlakeppni Evrópumótsins. Leikið er á Wembley í London og er mikil spenna fyrir leiknum.
Einhverjum stuðningsmönnum þjóðanna lenti saman á götum London fyrir leikinn í dag og náðist það á myndband.
Einhverjum stuðningsmönnum þjóðanna lenti saman á götum London fyrir leikinn í dag og náðist það á myndband.
Þjóðirnar eru auðvitað nágrannaþjóðir og mikill rígur á milli þeirra. Einn stuðningsmaður skoska landsliðsins blóðgaðist í slagsmálunum.
Matt Lawton hjá Times í Bretlandi endurbirtir myndbandið og skrifar við það að þetta sé sorgleg uppákoma.
England er með þrjú stig eftir sigur í fyrstu umferð en Skotland tapaði gegn Tékklandi í fyrsta leik.
Really is pathetic https://t.co/TS6JkYROwz
— Matt Lawton (@Lawton_Times) June 18, 2021
Athugasemdir