Wolves hefur samið við efnilegan leikmann að nafni Yerson Mosquera.
Þetta var staðfest í gær en Mosquera er 20 ára gamall og spilar í miðverði.
Hann kemur frá Kólumbíu og hefur vakið athygli með Atletico Nacional þar í landi.
Mosquera er 188 sentímetrar á hæð en hann spilaði sjö leiki með Atletico í Copa Libertadores keppninni.
Hann skrifar undir fimm ára samning við Wolves en á eftir að fá atvinnuleyfi á Englandi.
Athugasemdir