Son eftirsóttur í Sádi-Arabíu - Bayern hefur áhuga á Mitoma - Napoli vill Sancho
   mið 18. júní 2025 16:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Danijel Djuric vann einn á einn mót Adams Páls og Fótbolta.net
Danijel sló út Binna Hlö í undanúrslitunum.
Danijel sló út Binna Hlö í undanúrslitunum.
Mynd: Alexander Tonini
Í gær fór fram 1 á 1 mót Adams Ægis Pálssonar og Fótbolta.net. Mótið fór fram í Þróttheimum í Laugardal.

Góð þátttaka var í mótinu, um 100 manns tóku þátt, bæði strákar og stelpur og efnilegir leikmenn í bland við atvinnumenn.

Úrslitaviðureignin var á milli Hauks Arnar Brink og Danijel Dejan Djuric. Haukur er leikmaður Stjörnunnar og Danijel er leikmaður NK Istra í Króatíu. Danijel, sem hafði aðeins hikstað framan af móti, var búinn að finna taktinn þegar kom að úrslitunum og vann sigur.

Í verðlaun fékk hann 500 þúsund krónur og Haukur fékk 100 þúsund krónur fyrir annað sætið.

Jón Dagur Þorsteinsson, Daníel Freyr Kristjánsson, Kristall Máni Ingason og Helgi Fróði Ingason tóku einnig þátt í mótinu.

Þátttakandur gátu unnið treyju frá atvinnumönnum og voru fimm heppnir dregnir út og fengu eina treyju. Það voru þeir Logi Tómasson, Albert Guðmundsson, Andri Lucas Guðjohnsen, Kristall Máni og Orri Steinn Óskarsson sem gáfu treyju.

Mótið var haldið í samstarfi við H verslun, Hamborgarabúlluna, Coca Cola og Livey sem sýndi beint frá mótinu.
Athugasemdir
banner
banner
banner