Fotbolti.net
18.06.26 - 18:07
Brynjar Ingi Erluson

HM: Tékkum refsað undir lokin

Teboho Mokoena bjargaði stigi fyrir Suður-Afríku

Teboho Mokoena bjargaði stigi fyrir Suður-Afríku

Canon

Mynd: EPA

Tékkland 1 - 1 Suður-Afríka
1-0 Michal Sadilek ('6 )
1-1 Teboho Mokoena ('83 , víti)
Suður-Afríkumenn björguðu stigi gegn Tékklandi í 1-1 jafntefli liðanna í annarri umferð A-riðils heimsmeistaramótsins á Mercedes-Benz-leikvanginum í Atlanta í dag.

Tékkar fengu draumabyrjun þegar Michal Sadilek kom boltanum í netið eftir gott samspil. Suður-Afríkumenn voru sofandi í vörninni þegar langt innkast var tekið upp hægri vænginn. Boltinn barst til Alexandr Sojka, sem stóð rétt fyrir utan vítateiginn, og hann lagði hann inn á Sadilek sem kláraði örugglega.

Annars var fyrri hálfleikurinn afar tíðindalítill. Suður-Afríkumenn hefðu auðveldlega getað brotnað niður eftir markið, en þeir gáfust aldrei upp.

Skemmtanagildið jókst ekki mikið í síðari hálfleik og óhætt er að segja að þetta hafi ekki verið einn af skemmtilegri leikjum mótsins til þessa.

Það lifnaði þó aðeins yfir leiknum á 81. mínútu þegar Suður-Afríkumenn fengu vítaspyrnu. Thapelo Maseko reyndi skot fyrir utan teig sem fór í höndina á Pavel Sulc og vítaspyrna var dæmd. Teboho Mokoena fór á punktinn og setti boltann alveg út við stöng vinstra megin. Staðan orðin jöfn.

Það var sanngjarnt, enda fóru Tékkar í mjög furðulegt leikplan eftir að hafa komist yfir. Þeir lögðust aftarlega, reyndu lítið að bæta við forystuna og var refsað fyrir það.

Suður-Afríkumenn voru jafnvel líklegri til að vinna leikinn undir lokin, en jafnteflið gerir lítið fyrir liðin þótt þetta hafi verið fyrstu stig þeirra á mótinu. Bæði eru með eitt stig á meðan Mexíkó og Suður-Kórea sitja í tveimur efstu sætum riðilsins með þrjú stig hvort.
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Tékkarnir voru saddir eftir fyrsta markið, en það kom aldeilis í bakið á þeim

Tékkarnir voru saddir eftir fyrsta markið, en það kom aldeilis í bakið á þeim

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.