HM: Þrenna frá Saka tryggði bronsið

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Frakkland 4 - 6 England
0-1 Declan Rice ('3 )
0-2 Ezri Konsa ('18 )
0-3 Bukayo Saka ('37 )
0-4 Bukayo Saka ('45+1 )
1-4 Kylian Mbappe ('48 )
2-4 Bradley Barcola ('54 )
3-4 Kylian Mbappe ('66 )
3-5 Bukayo Saka ('87, víti)
4-5 Ousmane Dembele ('96)
4-6 Jude Bellingham ('98)
0-1 Declan Rice ('3 )
0-2 Ezri Konsa ('18 )
0-3 Bukayo Saka ('37 )
0-4 Bukayo Saka ('45+1 )
1-4 Kylian Mbappe ('48 )
2-4 Bradley Barcola ('54 )
3-4 Kylian Mbappe ('66 )
3-5 Bukayo Saka ('87, víti)
4-5 Ousmane Dembele ('96)
4-6 Jude Bellingham ('98)
England tryggði sér bronsið á heimsmeistaramótinu eftir ótrúlega fjörugan leik gegn Frakklandi í kvöld.
Þetta reyndist afar kaflaskiptur leikur þar sem Frakkar mættu varla til leiks í fyrri hálfleikinn. Declan Rice skoraði eftir arfaslakan varnarleik strax á þriðju mínútu og tvöfaldaði Ezri Konsa forystuna með skalla eftir hornspyrnu. Adrien Rabiot missti af Konsa og skildi hann eftir einan og óvaldaðan.
Bukayo Saka setti þriðja markið svo eftir skyndisókn og getur þakkað Marcus Rashford fyrir undirbúninginn en Englendingar voru ekki búnir. Saka skoraði aftur í uppbótartímanum eftir góðan bolta frá Eberechi Eze, liðsfélaga sínum hjá Arsenal. Staðan 4-0 í leikhlé.

Didier Deschamps, fráfarandi þjálfari Frakka, hefur látið heyra í sér í hálfleik því lærlingar hans mættu grimmir út í seinni hálfleikinn. Kylian Mbappé skoraði og lagði svo upp fyrir Bradley Barcola áður en Mbappé skoraði svo aftur, svo staðan var orðin 4-3 á 66. mínútu.
Michael Olise fékk gullin tækifæri til að skora jöfnunarmark en hæfði ekki rammann og braut Malo Gusto svo af sér innan vítateigs á hinum endanum þegar nokkrar mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma. Saka skoraði örugglega af vítapunktinum og fullkomnaði þar með þrennu.

Frakkar reyndu að minnka muninn á lokamínútum og skoraði Ousmane Dembélé þegar um tvær mínútur voru eftir í heildina, en Jude Bellingham svaraði með marki eftir laglegt einstaklingsframtak. Lokatölur urðu því 6-4.

TENGT EFNI
Fjórum mörkum yfir í hálfleik

Olise búinn að klúðra dauðafærum til að jafna