Akliouche nálgast Evrópumeistarana

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Frakklands- og Evrópumeistarar Paris Saint-Germain eru að nálgast samkomulag við AS Mónakó um félagaskipti fyrir Maghnes Akliouche.

TENGT EFNI
PSG leiðir kapphlaupið um stjörnu Mónakó
Akliouche er 24 ára kantmaður sem kom að 18 mörkum í 43 leikjum á síðustu leiktíð. Hann er í franska landsliðshópnum á HM en hefur aðeins komið við sögu í einum leik, þægilegum sigri gegn Írak.
Akliouche hefur verið hjá Mónakó frá 15 ára aldri og vill komast til stærra félags. Hann á tvö ár eftir af samningi.
Talið er að Monaco vilji fá 50 milljónir evra fyrir kantmanninn en opnunartilboð PSG hljóðaði upp á 35 milljónir.
Ensku stórveldin Liverpool og Manchester City eru meðal félagsliða sem höfðu einnig áhuga á Akliouche, en leikmaðurinn er spenntastur fyrir PSG.
Félagaskipti Akliouche gætu gert eftirsóttum Bradley Barcola kleift að skipta um félag. Hann er kantmaður í hæsta gæðaflokki og vill leika stærra hlutverk heldur en hjá PSG.