Fotbolti.net
18.07.26 - 22:26
Ívan Guðjón Baldursson

Söguleg endurkoma í kortunum?

Söguleg endurkoma í kortunum?
Canon

Mynd: EPA

Rosalegur seinni hálfleikur er að spilast í bronsleik heimsmeistaramótsins þessa stundina þar sem England var afar óvænt fjórum mörkum yfir eftir fyrri hálfleikinn.
Fjórum mörkum yfir í hálfleik
TENGT EFNI

Fjórum mörkum yfir í hálfleik

Didier Deschamps, fráfarandi þjálfari Frakka, hefur haldið alvöru ræðu fyrir sína menn í leikhlé því lærlingar hans eru búnir að helminga forystu Englendinga eftir fyrsta stundarfjórðunginn af síðari hálfleiknum.

Kylian Mbappé minnkaði muninn niður í þrjú mörk áður en Bradley Barcola, sem er nýkominn inn af bekknum, skoraði annað mark. Staðan er því orðin 4-2 fyrir England þegar um hálftími er eftir af venjulegum leiktíma.

Sjáðu markið hans Mbappé.

Sjáðu markið hans Barcola.

Frakkar fá því tækifæri til að fullkomna sögulega endurkomu í kveðjuleik Deschamps við stjórnvölinn.

Sjáðu mörkin: Englendingar þremur yfir
TENGT EFNI

Sjáðu mörkin: Englendingar þremur yfir

Söguleg endurkoma í kortunum?
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.