Hraunar yfir Tuchel - „Eintómt kjaftæði hjá honum“

Davor Suker

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Davor Suker

Mynd: EPA
Davor Suker, fyrrum landsliðsmaður Króatíu, er afar ósáttur með ummæli sem Thomas Tuchel, þjálfari enska landsliðsins, lét falla á blaðamannafundi fyrir bronsleikinn gegn Frökkum.
Tuchel leiðir Englendinga gegn Frökkum í leiknum um þriðja sæti heimsmeistaramótsins, en hann sagði á blaðamannafundi að hvorki Englendingar né Frakkar hefðu nokkurn áhuga á að spila leikinn.
Ummælin fóru illa í Davor Suker, sem lék sjálfur um bronsverðlaunin á HM 1998 og hjálpaði Króötum að vinna Holland.
„Þeir ríku vilja ekki spila þegar þeir tapa. Hafið samt engar áhyggjur því þessi leikur getur orðið mjög mikilvægur.“
„Á HM 1998 börðumst við um þriðja sætið gegn Hollandi og ég get talað um þann árangur með stolti enn þann dag í dag.“
„Sumir eiga svo marga titla og eru orðnir svo ríkir að þeim finnst þessi leikur engu máli skipta. Ég segi þeim hins vegar að þegja og sýna öllum þeim 211 þjóðum sem berjast um sæti á HM virðingu.“
„Þeir þurfa að skilja að þeir eiga ekki heiminn. Fótboltaheimurinn tilheyrir líka millistéttinni, smærri þjóðum og þeim sem hafa einfaldlega gaman af fótbolta.“
„Ég get lofað ykkur því að eftir tuttugu ár munu þeir sem vinna bronsið enn muna eftir medalíunni. Þess vegna skiptir Tuchel engu máli í þessari sögu. Þetta er bara algjört kjaftæði hjá honum,“ sagði Suker í viðtali við Tancredi Palmeri.
England og Frakkland mætast klukkan 21:00 í kvöld, en leikurinn er spilaður á Hard Rock-leikvanginum í Miami í Bandaríkjunum.