Fotbolti.net
18.07.26 - 20:34
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Súrsæt tilfinning eftir leik á Akureyri - „Stutt síðan ég hélt að ég þyrfti bara að hætta"

Auglýsing
Loksins mættur aftur á völlinn.

Loksins mættur aftur á völlinn.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Daði Berg Jónsson lék sinn fyrsta keppnisleik fyrir Víking frá árinu 2024 og sinn fyrsta meistaraflokksleik síðan 12. júlí í fyrra þegar hann lék seinni hálfleikinn gegn Þór á Akureyri í dag.

„Tilfinningin er súrsæt, gríðarlega gaman að vera kominn aftur inn á völlinn, búið að vera langt ár. Skellur að tapa, Þórsararnir voru bara flottir, voru þéttir fyrir, lögðu sig alla fram og uppskáru síðan,"
Lestu um leikinn: Þór 2 - 1 Víkingur R.
„Ég hélt við myndum ná að jafna, sætt að skora í endurkomuleiknum en skellur að tapa."

Ertu alveg orðinn 100%?

„Það er kannski erfitt að segja það, það er stutt síðan ég hélt að ég þyrfti bara að hætta. Ég fer til töfralæknis í Danmörku og er búinn að vera hitta Gunnar Má Másson sem er búinn að græja svolítið skrokkinn á mér. Ég get ekki sagt að ég sé 100%, maður fer ekki úr núll upp í hundrað á einum degi, þetta er enn í vinnslu."

„Þetta var orðið helvíti þungt, búinn að fara í tvær aðgerðir og var langt frá því að snerta völlinn í 10-11 mánuði. Innst inni ætlaði ég aldrei að hætta, það er gaman að spila og maður er í þessu til þess. Það er mikil ástríða innra með mér fyrir fótbolta, en þetta var orðið mjög þungt,"
segir Daði Berg.

Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum efst
Úr leiknum í dag.

Úr leiknum í dag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.