18.08.12 - 08:30
Brynjar Ingi Erluson
Jamie Proctor til Swansea (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Enska úrvalsdeildarfélagið Swansea City hefur fengið Jamie Proctor til félagsins frá Preston North End.
Proctor, sem er 20 ára gamall framherji skoraði 4 mörk í 40 leikjum á tveimur tímabilum hjá Preston, en hann var mikið frá vegna meiðsla á síðustu leiktíð.
Hann hefur nú skrifað undir tveggja ára samning við Swansea City, en danski stjórinn Michael Laudrup er að styrkja liðið fyrir komandi átök í ensku úrvalsdeildinni.
,,Ég er ánægður með að vera kominn til Swansea. Félagið hefur náð miklum árangri undanfarin ár og leikstíll þeirra hefur náð augum allra. Ég hlakka til þess að verða partur af þessu og hrífa stjórann,\" sagði Proctor.