18.08.12 - 12:00
Brynjar Ingi Erluson
Jose Bosingwa til QPR (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Enska úrvalsdeildarfélagið QPR hefur staðfest kaupin á portúgalska bakverðinum Jose Bosingwa.
Bosingwa, sem er 29 ára gamall skrifaði undir þriggja ára samning við QPR í gær eftir að hafa staðist læknisskoðun.
Hann var seinast á mála hjá Chelsea, en hann var partur af liðinu sem vann bæði FA bikarinn og Meistaradeild Evrópu.
Samningur hans við félagið rann út í sumar og var hann því frjáls ferða sinna. QPR hefur staðfest það að hafa fengið leikmanninn í sínar raðir.
,,Ég er ánægður með að vera hérna. Ég hafði úr mörgu að velja, en ákvað að koma hingað því mér þótti verkefnið mjög spennandi,\" sagði Bosingwa.

Heimild: Sky