Fotbolti.net
18.08.12 - 14:00
Ívan Guðjón Baldursson

Simao til Espanyol (Staðfest)

Simao til Espanyol (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Espanyol hefur staðfest komu portúgalska kantmannsins Simao Sabrosa frá Besiktas í Tyrklandi.

Simao er búinn að samþykkja tveggja ára samning en á eftir að standast læknisskoðun þar sem allt ætti að ganga snurðulaust fyrir sig.
Simao hefur spilað sem leikmaður Besiktas í eitt og hálft ár en hann er ekki nýr í spænsku deildinni þar sem hann hefur spilað með Barcelona og Atletico Madrid.

Simao var í liði Atletico Madrid sem vann Evrópudeildina og evrópska Ofurbikarinn árið 2010, en þetta er annað stóra nafnið sem Espanyol fær til liðs við sig í sumar þar sem Joan Capdevila, vinstri bakvörður spænska landsliðsins, kom fyrr í sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.