Fotbolti.net
17.08.26 - 22:34
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson

Heimir svekktur: Við þurfum að girða okkur í brók

Auglýsing
Heimir svekktur: Við þurfum að girða okkur í brók
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin

„Eins og alltaf, mér líður ekki vel eftir tapleiki" sagði Heimir Guðjónsson, þjálfari Fylkis, eftir 3-1 tap á úti velli gegn Þrótti.

Lestu um leikinn: Þróttur R. 3 - 1 Fylkir

„Svekkjandi tap. Leikurinn í sjálfu sér, fyrri hálfleikur, Þróttarar voru betri og við svolítið féllum í allar gildrur sem voru settar fyrir okkur. Jafnvægið á milli varnar og sóknar var ekki nægilega gott, réðum illa við Aron í þverhlaupunum og í skyndisóknunum. En seinni hálfleikurinn var góður, við sýndum karakter og komum til baka. Spiluðum svona okkar leik í seinni hálfleik og eftir það tvö-eitt þá fengum við einhver tvö, þrjú góð færi til þess að jafna leikinn en það gekk ekki upp."

„Við vorum að fara allt of mikið í miðjuna hjá Þrótti og tapa boltanum á slæmum stöðum. Þeir voru að komast í hraðar sóknir. Í seinni hálfleik fórum við meira út á kantana og fengum fyrirgjafir eins og við erum góðir í." 

Átti Fylkir skilið að jafna í seinni hálfleik?

„Það er ekkert spurt hvað maður á skilið og ekki skilið. Við fengum möguleikana til þess að jafna, nýttum þá ekki og því fór sem fór."

Fylkir er búin að spila tvo leiki í röð á móti liðum sem eru í toppbaráttunni með þeim, er Heimir ósáttur með þessa tvo leiki?

„Frammistaðan var fín á móti Aftureldingu, við fengum á okkur tvö mörk eftir löng innköst. Við erum að gefa allt of ódýr mörk og ef við lítum á síðustu fimm leiki, þá eru það fimmtán stig, við höfum bara fengið fjögur. Það er engan veginn nógu gott ef við ætlum að fara keppa við þessi lið. Við þurfum að girða okkur í brók í síðustu leikjunum."

Fullt viðtal í spilaranum fyrir ofan

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.