Fotbolti.net
17.08.26 - 22:28
Helgi Inguson

Hólmar Örn: Mjög sérstakur leikur

Auglýsing
Hólmar Örn skoraði mark Vals í fyrri háfleik

Hólmar Örn skoraði mark Vals í fyrri háfleik

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Valur tók á móti KA í 19. umferð Bestu deildar karla í kvöld. Liðin þurftu að sætta sig við sitthvort stigið þegar Helgi Mikael flautaði til leiksloka, 4-4 jafntefli var niðurstaðan. Fótbolti.net ræddi við Hólmar Örn Eyjólfsson, fyrirliða Vals, eftir leik
Lestu um leikinn: Valur 4 - 4 KA
„Mjög sérstakur leikur. Þetta var fram og til baka í 90 mínútur. Við erum auðvitað svekktir að fá KA í heimsókn á okkar heimavöll og ná ekki að klára það. En úr því sem komið var, kannski ágætis karakter að koma til baka tvisvar," sagði Hólmar.

„Við vorum svolítið kraftlausir, erum búnir að vera í mikilli törn og höfum verið að rúlla mikið á sömu leikmönnunum. Margir með margar mínútur í löppunum og við hefðum viljað skila heilsteyptari frammistöðu í stað þess að hleypa þessu í þennan fram og til baka bolta sem var í gangi."

„Við eigum að vera miklu betri en það að fá á okkur fjögur mörk hérna á heimavelli. Við erum vel mannaðir til baka og þurfum að stoppa í þetta," sagði Hólmar um varnarleik liðsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.