Fotbolti.net
17.08.26 - 22:31
Ívan Guðjón Baldursson

Badu: Áttum möguleika á að blanda okkur í baráttuna

Auglýsing
Badu: Áttum möguleika á að blanda okkur í baráttuna
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Daniel Osafo-Badu, þjálfari Vestra, svaraði spurningum eftir tap á útivelli gegn Völsungi í Lengjudeildinni fyrr í kvöld.
Lestu um leikinn: Völsungur 2 - 0 Vestri
Vestri er með 24 stig eftir tapið, fjórum stigum frá fallsæti þegar þrjár umferðir eru eftir af deildartímabilinu.

Marvin Darri Steinarsson, markvörður Vestra, var fluttur burt með sjúkrabíl eftir harkalegan árekstur í kjölfar hornspyrnu undir lok leiks.

„Við verðum bara að vonast það besta en þetta leit út fyrir að vera heilahristingur. Hann missti ekki meðvitund og talaði við okkur allan tímann svo það er jákvætt merki," sagði Badu, sem var svekktur eftir tapið.

„Við spiluðum ekki sérlega vel í fyrri hálfleik sem var mjög hægur en í síðari hálfleik vorum við sterkara liðið og fengum bestu færin. Við nýttum ekki færin og leyfðum þeim að skora, við skildum leikmann eftir einan í teignum og auðvitað skorar hann. Það var vendipunktur leiksins og þeir höfðu betur. Við getum bara kennt sjálfum okkur um þetta tap og óskað Völsungi til hamingju."

Markmið Vestra fyrir tímabilið var að komast í umspil um sæti í Bestu deildinni en núna er stefnan sett á að forðast fallbaráttu í lokaumferðunum.

„Við áttum möguleika á að blanda okkur í umspilsbaráttuna með sigri í dag en okkur tókst það ekki svo núna þurfum við að einbeita okkur að öðrum hlutum."
Badu: Áttum möguleika á að blanda okkur í baráttuna
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.