NSÍ Runavík tókst að fara í gegnum 15 leiki án taps í færeysku úrvalsdeildinni áður en liðið tapaði gegn B36 um síðustu helgi. Í kvöld tapaði liðið öðrum leiknum í röð.
Guðjón Þórðarson þjálfar NSÍ Runavík.
Guðjón Þórðarson þjálfar NSÍ Runavík.
NSÍ fékk í kvöld Klaksvík í heimsókn og var aðeins eitt mark skorað í leiknum. Sigurmarkið hjá gestunum kom á 83. mínútu.
Nú er hægt að spyrja sig að því hvort NSÍ hafi verið að stimpla sig úr titilbaráttunni með þessu tapi í kvöld. Klaksvík fer upp fyrir NSÍ í annað sæti deildarinnar og eru strákarnir hans Guðjóns núna fimm stigum frá toppliði B36.
Það eru fimm umferðir eftir af tímabilinu í færeysku úrvalsdeildinni.
Athugasemdir