40 ættingjar og vinir mæta á svæðið
Íslenski landsliðsmaðurinn Rúnar Már Sigurjónsson hefur verið harður stuðningsmaður Manchester United alla tíð. Rúnar Már mun á morgun spila gegn United á Old Trafford með liði sínu Astana frá Kasakstan í Evrópudeildinni.
Rúnar hefur séð nokkra leiki sem áhorfandi á Old Trafford í gegnum tíðina en hann var meðal annars á vellinum þegar Federico Macheda skoraði frægt sigurmark gegn Aston Villa árið 2008. Á morgun mun Rúnar spila sjálfur á vellinum og í stúkunni verða 40 fjölskyldumeðlimir og vinir hans úr Skagafirðinum.
The Athletic er með viðtal við Rúnar í dag þar sem hann segir frá viðbrögðum sínum þegar hann sat í flugvél á leið frá Hvíta-Rússlandi og sá að Astana og United drógust saman í riðil.
„Ég sá orðin 'Manchester United' og hugsaði 'Wow!" sagði Rúnar við The Athletic.
„Ég sá ekki einu sinni hin tvö liðin í riðlinum fyrr en klukkutímum síðar. Ég var einn í flugvélinni að hugsa um United og gat ekki talað við neinn. Þegar ég lenti sá ég hin liðin og síminn minn varð fullur af skilaboðum frá vinum. Allir vita hvað mitt lið er og flestir vinir mínir styðja líka Manchester United."
„United er liðið sem öll fjölskyldan mín styður og eins og allir á Íslandi þá eru þau brjáluð í enska boltann. Þau myndu frekar styðja lið sitt á Englandi heldur en heimaliðið á Íslandi," sagði Rúnar.
„Mig dreymdi aldrei um að fara á Old Trafford öðruvísi en áhorfandi. Ég sá sjálfan mig sem framtíðar ársmiðahafa þar þegar ég hætti að spila en núna er ég að fara að spila þar. Ég er mjög rólegur yfir leiknum en mjög ánægður með að fjölskylda mín geti séð mig spila á vellinum sem þau hafa heimsótt í 30 ár."
Þetta er heimsviðburður í Skagafirði. Er að fljúga til Manchester (ekki að fara á leikinn þó) og með mér er ca. helmingurinn af 34 manna fjölskylduhópi Rúnars sem er á leið á leikinn. Allt rammhart United-fólk. Sá fær stuðning annað kvöld. https://t.co/GSuF4h1DMN
— Tómas Þór Þórðarson (@tomthordarson) September 18, 2019
It will be a big game for Runar Mar Sigurjonsson in next week when he´ll play with FC Astana in Europa League against Man Utd at Old Trafford which is his boyhood favourite club. Let´s score some goals 🇮🇸👌#TeamTotalFootball pic.twitter.com/mhKClMaoSr
— Total Football (@totalfl) September 13, 2019
Athugasemdir