ManchesterEveningNews veltir fyrir sér hvernig byrjunarlið Manchester United verður á morgun gegn Crystal Palace. Leikurinn er fyrsti leikur United í deildinni á þessari leiktíð.
Donny Van de Beek verður líklega í byrjunarliðinu og þá er vinstri bakvörðurinn Luke Shaw klár í bátana.
Axel Tuanzebe er sá eini sem verður 100% ekki í hópnum hjá United á morgun en hann er að ná sér eftir aðgerð. MEN telur að Nemanja Matic verði í byrjunarliðinu en ekki Paul Pogba.
Líklegt byrjunarlið Man Utd skv MEN:
David de Gea; Aaron Wan-Bissaka, Victor Lindelöf, Harry Maguire, Luke Shaw; Nemanja Matic, Donny Van de Beek, Bruno Fernandes; Mason Greenwood, Anthony Martial og Marcus Rashford.
Leikurinn hefst klukkan 16:30 og er í beinni á Síminn Sport
Athugasemdir