lau 18. september 2021 08:30
Victor Pálsson
Cisse leggur skóna á hilluna
Mynd: Getty Images
Djibril Cisse, fyrrum framherji Liverpool, er kominn í nýtt starf en hann hefur skrifað undir hjá Marseille í Frakklandi.

Cisse leggur þar með skóna á hilluna fertugur að aldri en hann samdi við Panathinaikos Chicago í Bandaríkjunum fyrr á þessu ári.

Cisse gerði garðinn frægan með Auxerre á sínum yngri árum og lék síðar með Liverpool, Marseille, Lazio og Queens Park Rangers svo eitthvað sé nefnt.

Hann spilaði 41 landsleik fyrir Frakkland frá 2002 til 2011 en spilaði síðast atvinnumannabolta árið 2017.

Nú eru skórnir endanlega komnir upp í hillu en Cisse tók að sér þjálfarastarf hjá Marseille.

Hann mun þar vinna með yngri leikmönnum Marseille og þá aðallega sóknarmönnum félagsins.
Athugasemdir
banner
banner
banner