18.10.12 - 17:00
Fótbolti.net
Íslenskur slúðurpakki - Númer fjögur

Halldór Orri er orðaður við KR.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ondo er orðaður við endurkomu til Íslands.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Framtíð Viktors Bjarka er í óvissu.

Mynd: Fótbolti.net - Ingunn Hallgrímsdóttir

Atli Sveinn kemur mikið fyrir í pakkanum.

Mynd: Fótbolti.net - Hrafnhildur Heiða Gunnlaugsdóttir

Halldór Orri er orðaður við KR.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það er nóg af kjaftasögum í gangi í íslenska boltanum þessa dagana. Í íslenska slúðurpakkanum kemur fram helsti orðrómurinn sem gengur í bænum en við ítrekum að þetta er bara orðrómur, ekkert er staðfest fyrr en frétt með fyrirsögn sem hefur orðið (Staðfest) innan sviga birtist hér á Fótbolta.net.
Félög mega ræða strax við leikmenn með samþykki núverandi félags þeirra en leikmenn sem renna út á samningi á árinu eða um áramót má byrja að ræða við beint 16. október og þá þarf ekki að ræða við núverandi félag leikmannsins.
Slúðurpakkinn er einungis til að hafa gaman af og ef menn hafa ábendingar varðandi pakkann eða um slúður hafið þá samband á [email protected].
Slúðurpakki númer eitt (25. september)
Slúðurpakki númer tvö (2. október)
Slúðurpakki númer þrjú (9. október)

FH: Í Kaplakrika er unnið að því að semja við Daða Lárusson og Ingimund Níels Óskarsson en lítið annað er í gangi í augnablikinu. Atli Viðar Björnsson mun einnig gera nýjan samning við FH.
Breiðablik: Gilles Mbang Ondo, fyrrum framherji Grindvíkinga, er á óskalista Blika sem og Jón Gísli Ström leikmaður ÍR.
ÍBV: Jón Gísli Ström leikmaður ÍR gæti verið á leið í ÍBV. Tonny Mawejje er líklega á förum en að öðru leyti heyrist lítið úr Eyjum.
KR: Halldór Orri Björnsson, leikmaður Stjörnunnar, gæti gengið í raðir KR. Viktor Bjarki Arnarsson er á förum og þá er Magnús Már Lúðvíksson að hugsa sér til hreyfings. Steven Lennon, framherji Fram, er áfram orðaður við KR-inga og þá hefur Nigel Quashie einnig verið orðaður við félagið.
Stjarnan: Veigar Páll Gunnarsson er áfram sterklega orðaður við sitt gamla félag sem og Viktor Bjarki Arnarsson. Stjörnumenn hafa mikinn áhuga á að fá Stefán Gíslason og þá gæti Tómas Leifsson fylgt Loga Ólafssyni frá Selfossi. Alexander Scholz hefur staðið sig vel á reynslu hjá Lokeren og hann gæti gengið til liðs við belgíska félagið.
ÍA: Jóhann Þórhallsson hefur verið orðaður við Skagamenn og þá er Viðar Örn Kjartansson framherji Selfyssinga áfram sterklega orðaður við félagið.
Fylkir: Tómas Leifsson gæti verið á leið í Árbæinn. Gilles Mbang Ondo fyrum framherji Grindvíkinga er einnig orðaður við Fylki sem og Viktor Bjarki Arnarsson og Jón Gísli Ström.
Valur: Það eru miklar hræringar á Hlíðarenda eins og oft á haustin. Markmannsmálin eru í óvissu en Stefán Logi Magnússon markvörður Lilleström ku hafa rætt við félagið. Viktor Bjarki Arnarsson leikmaður KR er ofarlega á óskalista Valsmanna en á honum eru einnig Sam Tillen, Christian Steen Olsen, Jón Gísli Ström og Viðar Örn Kjartansson. Nokkrir leikmenn eru farnir frá félagiu og það gæti einnig fjölgað í þeim hópi. Atli Sveinn Þórarinsson, Andri Fannar Stefánsson, Guðjón Pétur Lýðsson gætu meðal annars verið á förum.
Keflavík: Stefán Gíslason, miðjumaður Leuver, gæti gengið tiðl liðs við Keflavíkinga. Atli Sveinn Þórarinsson, varnarmaður Vals, er einnig á óskalistanum.
Fram: Atli Sveinn Þórarinsson varnarmaður Vals er á óskalista Framara sem Viktor Bjarki Arnarsson miðjumaður KR.
Þór: Líklegt er að bandaríski markvörðurinn Joshua Wicks verði áfram í herbúðum Þórs. Jóhann Þórhallsson er einnig orðaður við uppeldisfélag sitt.
Víkingur Ó.: Halldór Kristinn Halldórsson, fyrrum varnarmaður Vals, á í viðræðum við Víkinga. Ólafsvíkingar gætu fengið Egil Jónsson og Torfa Karl Ólafsson á láni frá KR og þá gæti Þorsteinn Már Ragnarsson einnig komið „heim“ úr Vesturbænum. Ólsarar eru einnig í markmannsleit og þar er Srdjan Rajkovic markvörður Þórs á óskalistanum. Óvíst er hvort lánsmennirnir Arnar Sveinn Geirsson og Björn Pálsson verði áfram hjá Ólafsvíkingum. Björn mun hefja æfingar með félagi sínu Stjörnunni og framtíð hans skýrist betur í vetur.
Selfoss: Arilíus Marteinsson og Einar Ottó Antonsson ætla að byrja að spila aftur með Selfyssingum. Arilíus lék með Ægi í sumar á meðan Einar Ottó var í fríi frá fótbolta.
Grindavík: Óskar Pétursson gæti yfirgefið Grindavík. Dejan Pesic, markvörður Völsungs, gæti fyllt hans skarð en hann er þó einnig á óskalista félaga í Pepsi-deildinni.
KA: Guðmundur Óli Steingrímsson hefur sagt upp samningi sínum hjá KA. Henrik Bödker gæti fylgt Bjarna Jóhannssyni frá Stjörnunni og orðið aðstoðarþjálfari KA. Atli Sveinn Þórarinsson, miðvörður Vals, er orðaður við endurkomu á Akureyri og Jóhann Þórhallsson er einnig orðaður við KA en hann lék með liðinu á sínum tíma.
Víkingur R.: Nigel Quashie gæti farið til Víkings sem spilandi aðstoðarþjálfari.
BÍ/Bolungarvík: Vestfirðingar ætla að styrkja leikmannahóp sinn vel fyrir næsta tímabil. Fá nöfn hafa heyrst ennþá en Srdjan Rajkovic markvörður Þórs og Max Touloute framherji Tindastóls eru þó á óskalistanum.
KF: Ekki er ennþá staðfest að Lárus Orri Sigurðsson haldi áfram sem þjálfari KF.
Dalvík/Reynir: Hermann Albertsson ætlar líklega að leggja skóna á hilluna. Dalvík/Reynir er ennþá í þjálfaraleit en félagið er opið fyrir því að fá ungan þjálfara í starfið.
Reynir Sandgerði: Willum Þór Þórsson er orðaður við þjálfarstöðuna í Sandgerði.
Magni: Óvíst er hvort Atli Már Rúnarsson haldi áfram með Magna. Velski miðjumaðurinn Liam Killa verður sennilega ekki áfram hjá Grenvíkingum.