18.10.12 - 17:49
Elvar Geir Magnússon
Óli Brynjólfs ráðinn þjálfari Gróttu (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ólafur Tryggvi Brynjólfsson var í dag ráðinn nýr þjálfari meistaraflokks karla hjá Gróttu en hann gerði tveggja ára samning við félagið. Þetta hefur félagið staðfest.
Grótta mun leika í 2. deildinni á næsta ári en mun freista þess að ná sæti í 1. deild að ári. Ráðning Ólafs er liður í þeim áætlunum. Grótta lék síðast í 1. deild árið 2011.
Ólafur hefur verið þjálfari hjá Breiðablik undanfarin þrjú ár. Hann þjálfaði 2. flokk karla 2010 til 2012 og var að auki aðalþjálfari Augnabliks 2011 og 2012. Einnig þjálfaði hann meistaraflokk kvenna 2011 hjá Breiðabliki.
Sem leikmaður lék hann lengst af hjá Val en endaði ferilinn hjá ÍR síðustu þrjú árin. Hann þjálfaði einnig hjá Val 2003 til 2005.
Ólafur hefur lokið UEFA - A og KSÍ A stigum.
„Stjórn knattspyrnudeildar Gróttu lýsir yfir mikilli ánægju með að fá Ólaf til starfa. Ólafur hefur þann metnað og kraft sem Grótta þarf núna til þess að koma liðinu aftur upp í 1. deild,“ segir Hilmar S Sigurðsson formaður knattspyrnudeildar Gróttu.
Mynd að neðan: Ólafur Brynjólfsson þjálfari og Hilmar S Sigurðsson formaður knattspyrnudeildar Gróttu við undirritun samnings við Gróttu í dag.

Mynd: Grótta - Haukur Harðarson