Fotbolti.net
18.10.12 - 18:41
Elvar Geir Magnússon

Daði Lárusson genginn í raðir FH á ný (Staðfest)

Daði Lárusson genginn í raðir FH á ný (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

Markvörðurinn reynslumikli Daði Lárusson er genginn í raðir FH á nýjan leik. Á hann að vera nýjum aðalmarkverði liðsins Róberti Erni Óskarssyni til halds og trausts.

Frá þessu er greint á stuðningsmannavef FH, fhingar.net.

FH-ingar þekkja Daða gríðarlega vel enda var hann aðalmarkvörður liðsins og vann alla titla sem hægt er að vinna hér á landi.
Daði er 39 ára og hefur síðustu þrjú tímabil verið aðalmarkvörður Hauka.

Hann á þrjá A-landsleiki að baki fyrir Ísland.

Daða er ætlað að vera á bekknum og veita Róberti samkeppni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.