Fotbolti.net
18.10.19 - 16:15
Magnús Már Einarsson

Klopp: Man Utd getur byrjað að breyta stöðu sinni eftir viku

Jurgen Klopp.

Jurgen Klopp.

Canon

Mynd: Getty Images

Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, segir að Manchester United verði að bíða eina viku til viðbótar áður en liðið fer að snúa gengi sínu við.

Liverpool heimsækir Manchester United á sunnudag. Fimmtán stig skilja liðin að fyrir leikinn en Manchester United er í 12. sæti ensku úrvalsdeildarinnar.

Ole Gunnar Solskjær, stjóri Manchester United, hefur sagt að leikurinn á sunnudag sé fullkominn tímapunktur til að koma tímabilinu í gang hjá Manchester United.
„Ég held að það séu ekki mörg lið sem elska að spila gegn okkur í augnablikinu. Það lítur út fyrir að Manchester United sé eina liðið sem vill spila gegn okkur og við þurfum að sýna þeim að það sé misskilningur," sagði Klopp.

„Ég myndi gera það sama ef að staðan væri á hinn veginn. Þetta er leikur þar sem við getum breytt heiminum. Þannig myndi ég líta á það og undirbúa mig."

„Þeir eru í stöðu sem þeir eru ekki ánægðir með og þeir vilja breyta henni."

„Við þurfum að passa upp á það ef þeir vilja breyta stöðunni þá byrji þeir á því eftir eina viku. Það er það sem skiptir máli."

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Everton10014
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Coventry10-710
16Fulham9-29
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.