Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 18. október 2021 06:00
Victor Pálsson
Ryan tekur undir með Ödegaard
Mynd: Getty Images
Mat Ryan, fyrrum markvörður Arsenal, tekur undir orð fyrrum samherja síns Martin Ödegaard sem talaði ekkert nema vel um lið Real Sociedad á Spáni.

Þessir tveir voru saman í búningsklefa á síðustu leiktíð en Ödegaard var þá í láni frá Real Madrid og Ryan frá Brighton.

Sociedad tryggði sér þjónustu Ryan fyrir þetta tímabil en Ödegaard þekkir vel til félagsins eftir að hafa spilað þar í láni frá Real.

Að sögn Ryan væri Ödegaard til í að spila aftur á Spáni einn daginn en hann var endanlega keyptur til Englands fyrir tímabilið.

„Áður en ég vissi af áhuga Saociedad þá sagði hann við mig að þetta væri frábært lið, tíu af tíu í öllu saman. Liðip, lífið, menningin og allt saman,“ sagði Ryan.

„Núna er ég sammála honum. Hann er að njóta sín hjá Arsenal en er klárlega opinn fyrir því að snúa aftur til Spánar einn daginn.“
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner