18.12.17 - 17:00
Hafliði Breiðfjörð
Jökull Jörvar og Ólafur Frímann í Aftureldingu (Staðfest)

Jökull Jörvar á efri myndinni og Ólafur Frímann á þeirri neðri. Með þeim eru Magnús Már Einarsson aðstoðarþjálfari og Arnar Hallsson þjálfari.

Mynd: Afturelding

Afturelding hefur fengið Jökul Jörvar Þórhallsson og Ólaf Frímann Kristjánsson til liðs við sig fyrir átökin í 2. deild næsta sumar.
Jökull Jörvar kemur til Aftureldingar frá Víkingi R. á meðan Ólafur Frímann kemur til félagsins frá KV.
„Jökull er 19 ára fjölhæfur örvfættur miðjumaður, tæknilega góður með næmt auga fyrir spili Hann var að ganga upp úr öðrum flokki hjá Víkingi R. en hann var í sigurliði Víkings í bikarkeppni KSÍ,\" segir í yfirlýsingu frá Aftureldingu.
„Ólafur Frímann er 23 ára gamll varnarmaður, öflugur spilari sem er líkamlega sterkur. Hann spilaði tíu leiki með KV í 2. deildinni á síðasta tímabili. Í fyrra spilaði Ólafur tólf leiki með KV en hann ólst upp hjá Þrótti R.\"
„Leikmennirnir hafa báðir æft og spilað með Aftureldingu frá því að síðasta tímabili lauk, sýnt mikinn metnað og staðið sig vel. Jökull og Ólafur hafa fallið vel inn í efnilegan framtíðarhóp uppalinna leikmanna félagsins. Flestir leikmanna félagsins hafa framlengt samninga sína við félagið um tvö ár á undanförnum vikum. Það er mikil ánægja með að þessir nýju leikmenn félagsins skuli skrifa undir samning við Aftureldingu til næstu tveggja tímabila.\"