Fotbolti.net
18.12.17 - 19:30
Magnús Már Einarsson

Jón Orri tekur við Einherja (Staðfest)

Jón Orri tekur við Einherja (Staðfest)
Canon

Mynd: Einherji

Ungmennafélagið Einherji, Vopnafirði, hefur ráðið Jón Orra Ólafsson sem þjálfara meistaraflokks karla.

Einherji endaði í 6. sæti í 3. deildinni í sumar en Víglundur Páll Einarsson hætti sem þjálfari liðsins eftir tímabilið.
Jón Orri er uppalinn Framari og á að baki 72 leiki með Fram í bikar, úrvals- og 1. deild.

Hann lék 44 leiki fyrir Einherja árin 2012-2014 en hefur nú þurft að leggja skóna á hilluna vegna meiðsla.

„Einherjamönnum er það fagnaðarefni að hafa ráðið Jón Orra til félagsins,\" segir í tilkynningu frá Einherja.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.