Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 19. janúar 2020 22:05
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Kjarnafæðismót kvenna: Þór/KA setti níu mörk
Hulda Ósk Jónsdóttir.
Hulda Ósk Jónsdóttir.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þór/KA 9 - 0 Hamrarnir
Mörk Þórs/KA: Hulda Ósk Jónsdóttir 4, María Catharina Ólafsdóttir Gros 2, Jakobína Hjörvarsdóttir, Una Móeiður Hlynsdóttir.

Þór/KA valtaði yfir Hamrana þegar liðin mættust í Kjarnafæðismóti kvenna í Boganum í dag.

Þór/KA lék á als oddi og skoraði þrjú mörk á fyrstu 20 mínútum leiksins. Staðan var 3-0 í hálfleik, en markaveislan var þá aðeins nýbyrjuð.

Þór/KA bætti við sex mörkum til viðbótar í síðari hálfleiknum. Hulda Ósk Jónsdóttir var mjög öflug í liði Þórs/KA og skoraði fjögur mörk. María Catharina Ólafsdóttir Gros skoraði tvennu, og þá voru Jakobína Hjörvarsdóttir og Una Móeiður Hlynsdóttir einnig á skotskónum.

Þór/KA er með sex stig eftir tvo leiki í Kjarnafæðismótinu. Hamrarnir eru með þrjú stig, en þær unnu Tindastól 5-0 í fyrsta leik.

Markaskorarar af Facebook-síðu Þórs/KA og Hamrana. Ekki kemur fram þar hver skoraði sjöunda mark leiksins.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner