Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 19. febrúar 2021 07:00
Aksentije Milisic
Álafoss fær fjóra leikmenn til liðsins
Patrekur Helgason og Ingvi Þór Albertsson.
Patrekur Helgason og Ingvi Þór Albertsson.
Mynd: Álafoss
KF Álafoss, sem leikur í fjórðu deildinni, hefur fengið fjóra leikmenn til liðsins.

Þeir Ingvi Þór Albertsson, Vilhjálmur Rúnarsson, Kristinn Aron Hjartarson og Andrés Andrésson eru allir komnir með félagaskipti.

Ingvi er fæddur árið 2000 en hann lék með Hvíta Riddaranum á síðustu leiktíð. Vilhjálmur Rúnarsson er fæddur árið 1993 og spilaði síðast með Mídas árið 2019.

Kristinn Aron Hjartarson er reynslumikill leikmaður sem spilaði síðast með Kórdrengjum í 3. deildinni árið 2019. Andrés Andrésson er fæddur árið 1996 en hann kemur frá Birninum. Hann er uppalinn hjá Fjölni.

„Ingvi Þór og Kiddi koma með til að styrkja sóknarleikinn okkar og taka hann upp á næsta þrep. Villi Rú eða Sleggjan kemur svo inn sem spilandi styrktarþjálfari.

Andrés Andrésson er fjölhæfur leikmaður sem getur leyst allar varnarstöður á vellinum.

Við erum virkilega ánægðir með þessa viðbót og bjóðum þá hjartanlega velkomna.

Álafoss alltaf í boltanum!"
er haft eftir Antoni Frey Jónssyni, íþróttafulltrúa Álafoss.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner