Síðustu leikjunum í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar var að ljúka og er ljóst að Íslendingalið Lille og Panathinaikos eru úr leik eftir tapleiki á útivelli.
Lille tapaði gegn Aston Villa á Villa Park þar sem heimamenn fengu bestu færin í bragðdaufum leik og unnu að lokum 2-0, eftir að hafa unnið fyrri leikinn í Frakklandi.
Staðan var markalaus í leikhlé en John McGinn og Leon Bailey skoruðu í síðari hálfleik til að tryggja sigur. Hákon Arnar Haraldsson fékk að spila síðasta hálftímann í liði Lille.
Aston Villa mætir annað hvort Roma eða Bologna í 8-liða úrslitunum þar sem staðan í ítalska einvíginu er 4-4 eftir skemmtilegar 180 mínútur.
Sverrir Ingi Ingason lék þá allan leikinn í 4-0 tapi hjá Panathinaikos gegn Real Betis á Spáni. Fyrrum úrvalsdeildarleikmennirnir Antony, Sofyan Amrabat og Cucho Hernández voru meðal markaskorara.
Betis tapaði fyrri leiknum 1-0 í Grikklandi en stjórnaði ferðinni frá upphafi til enda á heimavelli og skóp að lokum þægilegan sigur. Betis spilar við Braga frá Portúgal í 8-liða úrslitunum.
Roma og Bologna eru í framlengingu eftir 3-3 jafntefli en Bologna komst í 1-3 forystu. Jonathan Rowe og Santiago Castro lögðu upp fyrir hvorn annan og skoraði Federico Bernardeschi úr vítaspyrnu.
Evan Ndicka, Donyell Malen og Lorenzo Pellegrini gerðu mörk Rómverja.
Að lokum er Porto komið áfram eftir sigur gegn Stuttgart bæði heima og úti. Portúgalirnir unnu 2-0 í kvöld og mæta Nottingham Forest í 8-liða úrslitum.
Aston Villa 2 - 0 Lille (3-0 samanlagt)
1-0 John McGinn ('54 )
2-0 Leon Bailey ('86 )
Betis 4 - 0 Panathinaikos (4-1 samanlagt)
1-0 Aitor Ruibal ('8 )
2-0 Sofyan Amrabat ('45 )
3-0 Cucho Hernandez ('53 )
4-0 Antony ('66 )
Roma 3 - 3 Bologna (4-4 samanlagt)
0-1 Jonathan Rowe ('22 )
1-1 Obite Evan Ndicka ('32 )
1-2 Federico Bernardeschi ('45+2 , víti)
1-3 Santiago Castro ('58 )
2-3 Donyell Malen ('69 , víti)
3-3 Lorenzo Pellegrini ('80 )
Porto 2 - 0 Stuttgart (4-1 samanlagt)
1-0 William Gomes ('21 )
2-0 Victor Froholdt ('72 )
Rautt spjald: Nikolas Nartey, Stuttgart ('77)
Athugasemdir



