Börsungar vilja Rashford aftur á láni - Ndidi gæti farið til Man Utd - Hár verðmiði á Tonali
   fim 19. mars 2026 19:43
Ívan Guðjón Baldursson
Evrópudeildin: Lyon úr leik - Framlengt í Danmörku
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
16-liða úrslit Evrópudeildarinnar eru í fullu fjöri og var fyrstu leikjum dagsins að ljúka.

Þar eru stærstu fréttirnar að franska stórliðið Lyon er úr leik eftir tap á heimavelli gegn Celta Vigo.

Lyon náði jafntefli í fyrri leiknum á Spáni, en missti Moussa Niakhaté af velli með beint rautt spjald í fyrri hálfleik í dag. Celta nýtti sér liðsmuninn og var sterkari aðilinn og skoraði Javier Rueda fyrsta mark leiksins í síðari hálfleik.

Tíu leikmenn Lyon reyndu að sækja jöfnunarmark á lokamínútunum, en fengu mark í bakið svo lokatölur urðu 0-2. Nicolás Tagliafico fékk seinna gula spjaldið sitt í uppbótartíma svo heimamenn enduðu með níu manns á vellinum. Celta mætir Freiburg í 8-liða úrslitum.

Freiburg rúllaði yfir Genk eftir að hafa tapað fyrri leiknum í Belgíu. Leikmenn þýska liðsins skiptu mörkunum bróðurlega á milli sín í 5-1 sigri í dag.

Midtjylland tók að lokum á móti Nottingham Forest eftir að hafa unnið fyrri leikinn óvænt á Englandi.

Forest var talsvert sterkara liðið í fyrri hálfleik og geta Danirnir þakkað Elíasi Rafni Ólafssyni fyrir að hafa aðeins verið einu marki undir í leikhlé. Nicolás Domínguez skoraði með skalla eftir fyrirgjöf.

Seinni hálfleikurinn var mjög jafn en gestirnir tvöfölduðu forystuna með glæsilegu marki frá Ryan Yates sem átti fast skot utan vítateigs. Heimamenn voru þó öflugir og náðu að jafna þegar varnarmaðurinn Martin Erlic náði góðu viðstöðulausu skoti að marki eftir að boltinn datt fyrir hann í erfiðri hæð.

Lokatölur urðu 1-2 í Danmörku sem þýðir 2-2 samanlagt og því er leikurinn í framlengingu.

Lyon 0 - 2 Celta (1-3 samanlagt)
0-1 Javi Rueda ('61 )
0-2 Ferran Jutgla ('92)
Rautt spjald: Moussa Niakhate, Lyon ('19)
Rautt spjald: Nicolas Tagliafico, Lyon ('96)

Freiburg 5 - 1 Genk (5-2 samanlagt)
1-0 Matthias Ginter ('19 )
2-0 Igor Matanovic ('25 )
2-1 Matte Smets ('39 )
3-1 Vincenzo Grifo ('53 )
4-1 Yuito Suzuki ('57 )
5-1 Maximilian Eggestein ('79 )

Midtjylland 1 - 2 Nott. Forest (2-2 samanlagt)
0-1 Nicolas Dominguez ('40 )
0-2 Ryan Yates ('52 )
1-2 Martin Erlic ('69 )
Athugasemdir
banner
banner