Börsungar vilja Rashford aftur á láni - Ndidi gæti farið til Man Utd - Hár verðmiði á Tonali
   fim 19. mars 2026 21:40
Ívan Guðjón Baldursson
Glasner og Wharton: Risastórt afrek
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Oliver Glasner þjálfari Crystal Palace var ánægður eftir að lærlingar hans tryggðu sér þátttökurétt í 8-liða úrslitum Sambandsdeildarinnar með sigri gegn AEK Larnaca í Kýpur í dag.

Liðin gerðu óvænt jafntefli á Selhurst Park í síðustu viku en Palace stjórnaði ferðinni í báðum leikjunum án þess að takast að skora mikið af mörkum. Ismaila Sarr var hetjan í dag þar sem hann náði forystunni í fyrri hálfleik og skoraði svo sigurmark einvígisins í framlengingu.

Núna fer Palace í þriggja vikna frí og er næsti leikur liðsins á heimavelli gegn FIorentina 9. apríl. Palace keppir ekki í ensku úrvalsdeildinni komandi helgi útaf úrslitaleik deildabikarsins og svo er landsleikjahlé beint eftir helgi. Þá er engin úrvalsdeild eftir landsleikjagluggann útaf 8-liða úrslitum enska FA bikarsins og því fá leikmenn Palace langþráð frí fyrir lokahnykk tímabilsins.

„Þetta er risastórt afrek. Við munum nýta þessar þrjár vikur til að undirbúa okkur fyrir næsta keppnisleik gegn Fiorentina á Selhurst Park. Núna fáum við nokkra daga í frí og svo halda margir af leikmönnum okkar erlendis til að keppa í landsleikjaglugganum og við munum skipuleggja einhverja æfingaleiki þegar þeir koma til baka til að halda öllum í leikformi," sagði Glasner eftir sigurinn.

„Við erum ekki að glíma við mikið af meiðslum, ég býst við að Eddie Nketiah verði kominn til baka og þá erum við með allan hópinn liðtækan."

Adam Wharton lék allan leikinn í sigri Palace og er spenntur að mæta 'stórliði' Fiorentina í næstu umferð.

„Ég er mjög spenntur, þetta verður stórleikur gegn Fiorentina. Það er risastórt að vera í 8-liða úrslitum í evrópukeppni, fæstir okkar hafa reynslu af þessu. Þetta er í fyrsta sinn sem félagið fær að upplifa evrópukeppni," sagði Wharton.

„Fiorentina er stórt félag, ég held að flestir fótboltaáhugamenn þekki þetta nafn. Þetta er stórt félag á Ítalíu og þeir munu gefa okkur alvöru áskorun. Vonandi komumst við áfram."
Athugasemdir
banner
banner