Börsungar vilja Rashford aftur á láni - Ndidi gæti farið til Man Utd - Hár verðmiði á Tonali
banner
   fim 19. mars 2026 12:15
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Hin hliðin - Ásgeir Orri Magnússon (Keflavík)
Markmaðurinn Ásgeir Orri Magnússon.
Markmaðurinn Ásgeir Orri Magnússon.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Alvöru keppnisskap.
Alvöru keppnisskap.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Vill fá Stefán Jón aftur heim.
Vill fá Stefán Jón aftur heim.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Orðheppinn með meiru.
Orðheppinn með meiru.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Yrði flottur í Too hot to handle.
Yrði flottur í Too hot to handle.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stemningsmaður í glasi.
Stemningsmaður í glasi.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sindri Snær að hóta tuði.
Sindri Snær að hóta tuði.
Mynd: Helgi Þór Gunnarsson
Sjúlli að fara yfir markvarðafræðin.
Sjúlli að fara yfir markvarðafræðin.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ásgeir Orri Magnússon er mættur aftur á völlinn eftir að hafa slitið krossband fyrir um ári síðan. Ásgeir er uppalinn hjá Njarðvík en skipti yfir í Keflavík fyrir tímabilið 2022.

Ásgeir á að baki fjóra leiki fyrir yngri landsliðin. Tímabilið 2024 var hann aðalmarkmaður Keflavíkur í fyrsta sinn og gerir sterkt tilkall til að byrja mótið í ár.

Í dag sýnir hann á sér hina hliðina.

Fullt nafn: Ásgeir Orri Magnússon

Gælunafn: Geiri eða Gormurinn. Það er líka verið að kalla mig “markmaðurinn” en ég veit ekki alveg hvernig ég fíla það.

Aldur: 22 ára

Hjúskaparstaða: á lausu

Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki og er eitthvað minnisstætt úr leiknum: Fyrsti meistaraflokks leikurinn minn var 2022 með Reyni Sandgerði á móti Hvíta riddaranum. Við vorum nýbúnir að skora til þess að taka forystuna. Ég stend eitthvað fyrir utan teig þegar þeir taka miðjuna og skjóta, boltinn fer yfir mig og endar í netinu.

Uppáhalds drykkur: Hvítur monster klikkar ekki

Uppáhalds matsölustaður: Dominos þarf að gefa mer spons. Ótrúlegt hvað ég fer þangað oft

Uppáhalds tölvuleikur: ég spila ekki tölvuleiki en OG Fortnite voru tímarnir

Áttu hlutabréf eða rafmynt: Nei ekki eins og er

Uppáhalds sjónvarpsþáttur: Horfi lítið sem ekkert á þætti/myndir en var heitur fyrir The Rookie

Uppáhalds tónlistarmaður: Don Toliver er búinn að vera á repeat þessa dagana

Uppáhalds hlaðvarp: FM95blö

Uppáhalds samfélagsmiðill: Maður er allt of mikið að doomscroll-a á Instagram

Fyrsta síðan sem þú ferð á þegar þú opnar netið: Fotbolta.net

Fyndnasti Íslendingurinn: Hef mjög gaman af Gillz

Hvernig hljómar síðasta sms sem þú fékkst: Tu matt saekja pontunina kl:20:37 i Skeifan 17 Kvedja Domino's Pizza.

Hvaða liði myndir þú aldrei spila með: Leiknir R.

Besti leikmaður sem þú hefur mætt: líklega bara Gylfi Sig

Besti þjálfarinn sem hefur þjálfað þig: Ómar Jó og Sjúlli (Sævar Júlíusson)

Mest óþolandi leikmaður sem þú hefur mætt: Adam Ægir þegar hann er að tapa á æfingum. Keppnisskapið á þessum manni er svakalegt

Hver var fyrirmyndin þín í­ æsku: Cristiano Ronaldo

Sætasti sigurinn: Að vinna 2-1 á móti Breiðablik í bikarnum 2024 var sætur sigur

Mestu vonbrigðin: Krossbandsslitið í fyrra

Uppáhalds lið í enska: Get nú loksins sagt að ég sé stoltur stuðningsmaður Manchester United

Ef þú fengir að velja einn leikmann úr öðru íslensku liði í þitt lið: Stefán Jón má koma aftur heim

Efnilegasti fótboltamaður/kona landsins: Baldur Logi Brynjarsson ef hann heldur haus

Fallegasti fótboltamaðurinn á Íslandi: Breki Baxter er look moggari

Fallegasta fótboltakonan á Íslandi: Herdís Halla

Besti fótboltamaðurinn frá upphafi: C. Ronaldo er geitin þurfum ekki að ræða það meir

Ein regla í fótbolta sem þú myndir breyta: Það er alltaf verið að breyta reglunum þannig það sé erfiðara fyrir markmanninn að verja viti. Það má nú alveg gera víti erfiðari fyrir skyttuna og færa vítapunktinn aftar.

Uppáhalds staður á Íslandi: Maður líður alltaf vel í Sunny Kef

Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik: Það voru tveir leikir eftir í bestu og við vorum þá staðfestir að falla þannig það var látið mig spila þessa leiki sem voru eftir og í mínum fyrsta leik í efstu deild fékk ég á mig víti og gult spjald. Við förum síðan í seinasta leikinn í Vestmannaeyjum og í leiknum kemur stungusending á Oliver Heiðars og ég hleyp út í teiginn og skutla mer eftir boltanum, hann potar boltanum framhjá mér og ég enda á því að brjóta á mér AFTUR. 2 leikir í efstu og 2 gefin víti. Ekki alveg record sem ég er stoltur með.

Ertu með einhverja hjátrú tengda fótbolta: Þegar við erum að labba inn á völlinn rétt fyrir leik þá labba ég alltaf fyrst inn á völlinn með hægri fæti og geri krossinn

Fyrir utan fótbolta, fylgist þú með öðrum íþróttum: Nei

Í hvernig fótboltaskóm spilar þú: Puma Future

Í hverju varstu/ertu lélegastur í­ skóla: Íslenska var aldrei í uppáhaldi

Vandræðalegasta augnablik: Örugglega bara þegar það var skorað á mig frá miðju í fyrsta meistaraflokksleiknum.

Hvaða þremur leikmönnum byðir þú í mat og af hverju: Dag Inga upp á hláturinn, Stefán Jón út af tyggjósögunni og fullan Axel Inga halda samræðuna gangandi

Bestur/best í klefanum og af hverju: Sindri Snær, hann hatar ekki að tuða.

Hvern í liðinu þínu myndirðu velja til að taka þátt í sjónvarpsþáttaröð: Það væri gaman að sjá hvernig Breki myndi standa sig í Too hot to handle. Graðasti vinur minn.

Sturluð staðreynd um sjálfan þig: Byrjaði í marki á öðru ári í 2. flokk

Hvaða samherji hefur komið þér mest á óvart eftir að þú kynntist honum og af hverju: Dagur ingi, hann er ekkert eðlilega orðheppinn

Hverju laugstu síðast: Sagði við Eið Orra að hann væri í flottari peysu

Hvað er leiðinlegast að gera á æfingum: upphitun án bolta

Ef þú fengir eina spurningu til að spyrja hvern sem er: Hver yrði spurningin og hvern myndiru spyrja: OJ Simpson og spyrja hvort hann gerði það

Einhver skilaboð til stuðningsmanna fyrir sumarið: Make Keflavík Great again og mætum á Völlinn!
Athugasemdir
banner