Börsungar vilja Rashford aftur á láni - Ndidi gæti farið til Man Utd - Hár verðmiði á Tonali
miðvikudagur 18. mars
Úrslit Þungavigtarbikarsins
þriðjudagur 17. mars
Undanúrslit Lengjubikarsins
laugardagur 14. mars
laugardagur 7. mars
Undankeppni HM kvenna
þriðjudagur 3. mars
fimmtudagur 26. febrúar
Vináttulandsleikur
miðvikudagur 25. febrúar
Úrslitaleikur Reykjavíkurmótsins
miðvikudagur 18. febrúar
Evrópubikarinn - 8-liða úrslit
laugardagur 14. febrúar
Lengjubikar karla - A-deild, riðill 1
miðvikudagur 11. febrúar
Evrópubikarinn - 8-liða úrslit
fimmtudagur 18. desember
Sambandsdeildin
fimmtudagur 27. nóvember
miðvikudagur 19. nóvember
Evrópubikarinn - 16-liða úrslit
sunnudagur 16. nóvember
Undankeppni HM
fimmtudagur 13. nóvember
Undankeppni EM U21
Undankeppni HM
miðvikudagur 12. nóvember
Evrópubikarinn - 16-liða úrslit
fimmtudagur 6. nóvember
Sambandsdeildin
miðvikudagur 29. október
Þjóðadeild kvenna - Umspil
sunnudagur 26. október
Besta-deild karla - Efri hluti
föstudagur 24. október
Þjóðadeild kvenna - Umspil
fimmtudagur 23. október
Sambandsdeildin
miðvikudagur 22. október
Evrópukeppni unglingaliða
mánudagur 20. október
Besta-deild karla - Efri hluti
miðvikudagur 15. október
Evrópubikar kvenna
þriðjudagur 14. október
Undankeppni EM U21
mánudagur 13. október
Undankeppni HM
laugardagur 11. október
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
Besta-deild kvenna - Efri hluti
föstudagur 10. október
Undankeppni HM
Undankeppni EM U21
fimmtudagur 9. október
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
miðvikudagur 8. október
Evrópubikar kvenna
mánudagur 6. október
Besta-deild kvenna - Efri hluti
sunnudagur 5. október
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
Besta-deild kvenna - Efri hluti
laugardagur 4. október
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
föstudagur 3. október
Besta-deild kvenna - Efri hluti
fimmtudagur 2. október
Sambandsdeildin
miðvikudagur 1. október
Besta-deild kvenna - Efri hluti
Evrópukeppni unglingaliða
þriðjudagur 30. september
Besta-deild kvenna - Efri hluti
mánudagur 29. september
Besta-deild karla - Efri hluti
sunnudagur 28. september
Besta-deild karla - Neðri hluti
laugardagur 27. september
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
Lengjudeild karla - Umspil
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
föstudagur 26. september
Fótbolti.net bikarinn
mánudagur 22. september
Besta-deild karla - Efri hluti
miðvikudagur 17. september
Lengjudeild karla - Umspil
mánudagur 15. september
Besta-deild karla
fimmtudagur 19. mars
Sambandsdeildin
AEK Larnaca - Crystal Palace - 17:45
Rakow - Fiorentina - 17:45
AEK - Celje - 17:45
Mainz - Olomouc - 17:45
Shakhtar D - Lech - 20:00
Sparta Prag - AZ - 20:00
Vallecano - Samsunspor - 20:00
Strasbourg - Rijeka - 20:00
Evrópudeildin
Freiburg - Genk - 17:45
Lyon - Celta - 17:45
Midtjylland - Nott. Forest - 17:45
Betis - Panathinaikos - 20:00
Porto - Stuttgart - 20:00
Roma - Bologna - 20:00
Aston Villa - Lille - 20:00
fim 19.mar 2026 12:00 Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Magazine image

Spá Fótbolta.net fyrir Bestu deildina: 12. sæti

Sérfræðingar Fótbolta.net spá því að Keflavík muni enda í tólfta og neðsta sæti Bestu deildarinnar í sumar. Álitsgjafar spá í deildina en þeir raða liðunum upp í röð og það lið sem er í efsta sæti fær 12 stig, annað sæti 11 og svo koll af kolli niður í tólfta sæti sem gefur eitt stig. Keflavík fellur beint aftur niður í Lengjudeildina ef spáin rætist.

Keflavík vann umspilið í Lengjudeildinni í fyrra.
Keflavík vann umspilið í Lengjudeildinni í fyrra.
Mynd/Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Haraldur Freyr Guðmundsson er þjálfari Keflavíkur.
Haraldur Freyr Guðmundsson er þjálfari Keflavíkur.
Mynd/Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Keflvíkingar eru aftur mættir í Bestu deildina.
Keflvíkingar eru aftur mættir í Bestu deildina.
Mynd/Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Frans Elvarsson, herra Keflavík.
Frans Elvarsson, herra Keflavík.
Mynd/Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Muhamed Alghoul.
Muhamed Alghoul.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ásgeir Orri Magnússon er hér lengst til vinstri. Með honum á myndinni eru Sindri Kristinn Ólafsson og Rúnar Gissurarson.
Ásgeir Orri Magnússon er hér lengst til vinstri. Með honum á myndinni eru Sindri Kristinn Ólafsson og Rúnar Gissurarson.
Mynd/Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Davíð Helgi Aronsson kom á láni frá Víkingum.
Davíð Helgi Aronsson kom á láni frá Víkingum.
Mynd/Keflavík
Þorlákur Breki Baxter gekk í raðir Keflavíkur eftir að hafa spilað vel með ÍBV síðasta sumar.
Þorlákur Breki Baxter gekk í raðir Keflavíkur eftir að hafa spilað vel með ÍBV síðasta sumar.
Mynd/Keflavík
Anton Kralj átti gott tímabil með Vestra í fyrra.
Anton Kralj átti gott tímabil með Vestra í fyrra.
Mynd/Keflavík
Ásgeir Páll er bakvörður sem heillaði í Lengjudeildinni.
Ásgeir Páll er bakvörður sem heillaði í Lengjudeildinni.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hvað gera Keflvíkingar í sumar?
Hvað gera Keflvíkingar í sumar?
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Spáin:
1. ?
2. ?
3. ?
4. ?
5. ?
6. ?
7. ?
8. ?
9. ?
10. ?
11. ?
12. Keflavík, 17 stig

Um liðið: Keflavík er komið aftur í deild þeirra bestu eftir að hafa tryggt sér sæti í Bestu deildinni þrátt fyrir frekar sveiflukennda frammistöðu í Lengjudeildinni á síðasta tímabili. Keflavík er félag með nokkuð ríka sögu í íslenskum fótbolta. Ekki er neitt rosalega langt síðan Keflavík var að berjast um titla en síðustu ár hafa einkennst af óstöðugleika. Nú er liðið aftur komið upp í efstu deild og markmiðið hlýtur að vera að festa sig í sessi að nýju, byggja upp stöðugleika og skapa lið sem getur keppt við þau bestu til lengri tíma. Það hefur oft reynst nýliðum erfitt að stíga skrefið upp í Bestu deildina og Keflavík þarf að aðlagast hratt ef liðið ætlar ekki beint aftur niður. Það er ákveðin bjartsýni í kringum Keflavíkurliðið eftir góðan endasprett í fyrra og áhugaverðar breytingar á hópnum í vetur. Spurningin er hvort það dugi til að halda sér uppi – eða hvort óstöðugleikinn haldi áfram.

Þjálfarinn: Haraldur Freyr Guðmundsson stýrir skútunni í Keflavík og er að fara inn í sitt þriðja heila tímabil sem þjálfari liðsins. Hann tók við liðinu undir lok tímabilsins 2023 þegar Keflavík féll úr Bestu deildinni. Haraldur var aðstoðarmaður Sigurðar Ragnars Eyjólfssonar með Keflavíkurliðið þar áður en er auk þess fyrrum fyrirliði Keflavíkur og fyrrum þjálfari Reynis í Sandgerði þar sem hann gerði fína hluti. Það rennur dökkblátt blóð í æðum Haraldar og er hann mjög vinsæll hjá félaginu eftir allt sem hann hefur gert fyrir það. Nú stendur hann frammi fyrir stærsta verkefni sínu hingað til á þjálfaraferlinum. Bestu deildin er allt annað umhverfi og kröfurnar meiri.

Styrkleikar: Keflavík kemur inn í tímabilið með ákveðinn karakter og liðsheild sem skilaði þeim upp í Bestu deildina. Endaspretturinn í fyrra var frábær og liðið steig upp í stóru leikjunum sem er klárlega eitthvað sem hægt er að taka með sér inn í sumar. Vinnusemi og agi eru lykilþættir í leik þeirra og þeir geta verið óþægilegir andstæðingar, sérstaklega þegar þeir fá að spila sinn leik. Þá hefur liðið einnig ákveðna reynslu í lykilstöðum, bæði frá leikmönnum sem þekkja deildina og frá leikmönnum sem hafa farið í gegnum fallbaráttu í Bestu deildinni áður. Ef Keflavík nær að byggja á þessu og halda í samheldnina sem skilaði þeim upp, gæti það orðið mikilvægur grunnur í baráttunni um að halda sér uppi í ár. Þjálfararnir eru fyrrum leikmenn Keflavíkur sem náðu miklum árangri með félaginu sem leikmenn og vita hvað þarf til.

Veikleikar: Á pappírunum frægu er Keflavík ekki með eins sterkan hóp og flest önnur lið deildarinnar og það gæti reynst dýrt þegar líður á tímabilið. Fótbolti er þó ekki spilaður á pappír eins og allir vita. Breiddin í hópnum er einnig ákveðið áhyggjuefni þar sem meiðsli eða leikbönn gætu haft mikil áhrif. Varnarleikurinn var ekki aðalsmerki Keflavíkur í fyrra og það er eitthvað sem þeir þurfa að leggja áherslu á að bæta þegar þeir koma upp núna. Það fóru líka mörg mörk með Kára Sigfússyni og aðrir þurfa að stíga upp þegar hann er farinn.

Lykilmenn: Frans Elvarsson og Muhamed Alghoul
Frans er fyrirliði Keflavíkur og er leikmaður sem er með mikla reynslu af Bestu deildinni. Hann er bara herra Keflavík í rauninni og hefur hann spilað með liðinu allar götur frá árinu 2011. Muhamed Alghoul er aftur á móti leikmaður með litla sem enga reynslu úr efstu deild á Íslandi en hann er leikmaður sem fótboltaáhugamenn hér á landi ættu að fylgjast með. Hann var frábær í Lengjudeildinni í fyrra og var valinn í lið ársins að mótinu loknu. Bróðir hans, Halid, er núna kominn til liðsins og verður gaman að sjá þá spila saman.

Gaman að fylgjast með: Ásgeir Orri Magnússon
Ásgeir Orri er afar efnilegur markvörður sem er að koma til baka eftir að hafa slitið krossband. Sindri Kristinn Ólafsson átti líklega að byrja í markinu á þessu tímabili en hann er farinn til Svíþjóðar að elta ástina og því kemur Ásgeir inn í þetta. Ásgeir er klárlega framtíðarmarkvörður og verður spennandi að sjá hann taka stökkið í sumar. Annar leikmaður sem fólk á að fylgjast með í sumar er Davíð Helgi Aronsson í vörninni. Davíð kom á láni frá Víkingum eftir að hafa slegið í gegn með nágrönnunum í Njarðvík í fyrra, mjög efnilegur miðvörður þar á ferðinni.

Spurningarnar: Er hópurinn nægilega sterkur? Eru Ásgeir Orri og Davíð Helgi tilbúnir í þetta? Hvernig verður tengingin hjá Alghoul bræðrunum?

Völlurinn: Keflavík spilar heimaleiki sína á HS Orku vellinum í hjarta Reykjanesbæjar. Einn af fáum grasvöllum deildarinnar. Þarna hafa margir skemmtilegir leikir verið spilaðir í gegnum tíðina en hver man ekki eftir því þegar Hörður Magnússon lýsti marki Hjálmars Þórarinssonar í leik Keflavíkur og Fram sumarið 2008? Það getur verið erfitt að sækja Keflavík heim og ekki ólíklegt að það blási aðeins á meðan spilað er.

Komnir:
Anton Kralj frá Vestra
Davíð Helgi Aronsson fá Víkingi á láni (var hjá Njarðvík á láni)
Þorlákur Breki Baxter frá Stjörnunni (var á láni hjá ÍBV)
Baldur Logi Guðlaugsson frá Stjörnunni
Dagur Ingi Valsson frá KA
Halid Alghoul frá Króatíu
Mirsad Basic frá Svíþjóð

Farnir:
Kári Sigfússon í Fylki
Sindri Kristinn Ólafsson til Svíþjóðar
Ari Steinn Guðmundsson
Gunnlaugur Fannar Guðmundsson í Hauka
Stefán Jón Friðriksson í Grindavík
Valur Þór Hákonarson í Grindavík (var á láni hjá Víði)
Rúnar Ingi Eysteinsson í Grindavík (var á láni hjá Þrótti V.)



Leikmannalisti:
1. Ásgeir Orri Magnússon (m)
12. Rúnar Gissurarson (m)
- Mirsad Basic (m)
3. Axel Ingi Jóhannesson
4. Nacho Heras
5. Davíð Helgi Aronsson
6. Sindri Snær Magnússon
7. Dagur Ingi Valsson
8. Þorlákur Breki Baxter
9. Halid Alghoul
10. Stefan Alexander Ljubicic
11. Muhamed Alghoul
13. Anton Kralj
14. Marin Mudrazija
17. Baldur Logi Guðlaugsson
18. Ernir Bjarnason
19. Edon Osmani
20. Marin Brigic
22. Ásgeir Páll Magnússon
23. Eiður Orri Ragnarsson
25. Frans Elvarsson
27. Viktor Elmar Gautason
42. Baldur Logi Brynjarsson
77. Mihajlo Rajakovac
- Jóhann Elí Kristjánsson
- Viktor Árni Traustason

Fyrstu fimm leikir Keflavíkur:
12. apríl, KR - Keflavík (Meistaravellir)
17. apríl, Fram - Keflavík (Lambhagavöllurinn)
22. apríl, Keflavík - Breiðablik (HS Orku völlurinn)
26. apríl, KA - Keflavík (Greifavöllurinn)
3. maí, Keflavík - Víkingur R. (HS Orku völlurinn)

Spámennirnir: Anton Freyr Jónsson, Elvar Geir Magnússon, Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson, Haraldur Örn Haraldsson, Jóhann Þór Hólmgrímsson, Kári Snorrason, Stefán Marteinn Ólafsson, Sverrir Örn Einarsson, Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke, Sölvi Haraldsson, Tómas Þór Þórðarson og Valur Gunnarsson.
Athugasemdir
banner
banner