Börsungar vilja Rashford aftur á láni - Ndidi gæti farið til Man Utd - Hár verðmiði á Tonali
banner
   fim 19. mars 2026 12:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Við teljum okkur eiga heima hérna"
Haraldur Freyr Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur.
Haraldur Freyr Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Keflavík fór með sigur af hólmi í umspili Lengjudeildarinnar í fyrra.
Keflavík fór með sigur af hólmi í umspili Lengjudeildarinnar í fyrra.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Haraldur Freyr og Hólmar Örn Rúnarsson í sólinni í Keflavík.
Haraldur Freyr og Hólmar Örn Rúnarsson í sólinni í Keflavík.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Keflvíkingar stefna á að festa sig í sessi í efstu deild.
Keflvíkingar stefna á að festa sig í sessi í efstu deild.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
„Það er eðlilegt að nýliðunum sé spáð einu af neðstu sætunum," sagði Haraldur Freyr Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur, þegar Fótbolti.net fékk viðbrögð hans við spá sérfræðinga síðunnar fyrir tímabilinu sem framundan er. Keflavík er spáð neðsta sæti Bestu deildarinnar.

„Ég er auðvitað ekki sammála því að við munum enda þar en ég skil spánna. Það er yfirleitt þannig að liðunum sem eru að koma upp er spáð neðstu sætunum."

„Veturinn er búinn að vera mjög hefðbundinn og fínn. Við höfum æft mjög vel og spilað æfingaleiki. Við tókum þátt í Þungavigtarbikarnum og Lengjubikarnum. Við höfum fengið nokkuð góð svör á ýmsum stöðum. Við höfum spilað á mörgum leikmönnum og ungir strákar fengið að spila líka. Við höfum verið í viku núna í æfingaferð á Tenerife og eigum eftir að spila einhverja tvo æfingaleiki fram að bikarkeppninni sem hefst í byrjun apríl. Við erum ánægðir með þetta og erum nokkuð brattir," segir Haraldur.

Mjög ánægður með hópinn
Það hafa orðið nokkrar breytingar á Keflavíkurhópnum. Nokkrir leikmenn sem spiluðu stórt hlutverk í fyrra hafa horfið á braut og aðrir eiga að taka við keflinu.

„Ég er sáttur. Við höfum fengið inn nokkur ný andlit og aðrir horfið á braut. Við erum mjög ánægðir með hvernig samsetningin er og hvernig samkeppnin er á æfingum. Við erum mjög ánægðir með hópinn eins og hann er í dag," sagði þjálfari Keflvíkinga sem býst við því að núverandi hópur sé hópurinn sem fari inn í tímabilið þó augun séu auðvitað opin.

„Ég býst við að þetta sé hópurinn sem fer inn í mótið en við erum alltaf með augun opin fyrir góðum leikmönnum."

Skriðu inn í úrslitakeppnina
Síðasta tímabil var sérstakt fyrir Keflvíkinga sem voru lengi í gang í Lengjudeildinni. Um tíma leit út fyrir að liðið myndi ekki ná að komast í umspilið um sæti í Bestu deildinni. Það tókst þó að lokum og þá stigu menn upp.

„Lengjudeildin er svolítið öðruvísi. Þar ertu með þetta umspil. Við lentum í því 2024 að lenda í öðru sæti, stigi á eftir ÍBV sem fer beint upp. Við förum í umspilið og töpum gegn Aftureldingu sem fór þá upp. Núna höktum við í deildarkeppninni en náum að komast í umspilið og fórum þar í grannaslag gegn Njarðvík sem voru mjög áhugaverðir leikir. Við endum á að sigra og eftir það vorum við nokkuð vissir að við myndum klára þetta. Það var þannig orka og fólkið kom með okkur. Eftir Njarðvíkurrimmuna var ég nokkuð viss um að við myndum klára dæmið," sagði Haraldur Freyr.

„Við rétt skriðum inn í þessa úrslitakeppni en eftir að við komumst þangað inn var mikill hugur og mikil orka. Ég fann að menn voru tilbúnir að klára þetta."

Keflavík eigi heima hérna
Keflavík er félag með ríka sögu úr efstu deild og Haraldur telur að félagið eigi heima á meðal þeirra bestu.

„Mér líst frábærlega vel á það að koma aftur upp í deild þeirra bestu. Við erum bjartsýnir á það verkefni. Ég vil meina það að við eigum heima hérna, Keflavík á alltaf að vera með lið í efstu deild. Stefnan er klárlega að gera það vel að við verðum þar aftur að ári. Við erum mjög bjartsýnir á að gera það. Við erum nýliðar en Keflavík er með þannig sögu að þetta er ekki nýtt fyrir okkur. Við höfum verið hérna áður og margir leikmennirnir mínir hafa spilað í deildinni. Okkur hlakkar til."

„Markmiðið er að byrja á því að festa okkur í deild þeirra bestu. Svo er kannski hægt að fara að skoða eitthvað meira. Það hefur mikla þýðingu fyrir Keflvíkinga að eiga lið í efstu deild. Menn voru vanir því að við vorum alltaf með lið þar. Við teljum okkur eiga heima hérna," sagði þjálfarinn og bætti við að lokum:

„Ég hvet fólk að koma á völlinn að styðja okkur, vera á bak við liðið í þessari baráttu. Ég trúi því að Keflvíkingar muni mæta vel á völlinn í sumar og styðja liðið okkar."
Athugasemdir
banner