Börsungar vilja Rashford aftur á láni - Ndidi gæti farið til Man Utd - Hár verðmiði á Tonali
   fim 19. mars 2026 15:04
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Úrslitaleikur Lengjubikarsins á laugardag
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fylkir mætir KR í úrslitaleik Lengjubikars karla á laugardag. Spilað verður á heimavelli Fylkis, tekk VELLINUM í Árbæ. Leikurinn hefst klukkan 14:00 og verður í beinni textalýsingu hér á Fótbolti.net.

Lengjudeildarlið Fylkis er á leið í sinn annan úrslitaleik í röð í Lengjubikarnum en liðið tapaði gegn Val í úrslitunum í fyrra. Þá komst Fylkir í úrslitaleikinn eftir að hafa unnið KR.

Fylkir vann 0-2 útisigur á Þór í vikunni og tryggði sér þar með miða í úrsltialeikinn. Guðmundur Tyrfingssson og Benedkt Daríus Garðarsson skoruðu mörk Árbæinga á Greifavellinum.

Bestu deildar lið KR vann 0-4 útisigur á Stjörnunni síðasta laugardag. Alexander Rafn Pálmason og Amin Cosic skoruðu báðir tvennu fyrir KR.
Gummi Tyrfings: Við slökktum í þeim frá fyrstu mínútu
Athugasemdir
banner