Uppalinn hjá West Ham
Magni er búinn að staðfesta komu sókndjarfa miðjumannsins Dominic Vose til Grenivíkur.
Vose er 27 ára og ólst upp hjá West Ham United þar til hann var látinn fara 19 ára gamall.
Síðan þá hefur hann spilað í neðri deildum á Englandi, meðal annars í C- og D-deildunum.
Colchester United, Wrexham, Grimsby Town og Dulwich Hamlet eru þau félög sem hann hefur leikið lengst af hjá á sínum leikmannaferli.
„Hann mun styrkja liðið mikið í baráttunni um að endurheimta sætið okkar í næst efstu deild að ári," segir í færslu frá Magna.
Magni féll úr Lengjudeildinni í fyrra og leikur því í 2. deild í sumar.
Athugasemdir