Göteborg 2 - 0 AIK
1-0 Kolbeinn Sigþórsson ('3)
2-0 Kolbeinn Sigþórsson ('38)
1-0 Kolbeinn Sigþórsson ('3)
2-0 Kolbeinn Sigþórsson ('38)
Kolbeinn Sigþórsson skoraði bæði mörkin er Gautaborg lagði hans fyrrum félag í AIK að velli í sænska boltanum í dag.
Kolbeini tókst ekki að skora fyrir AIK í átján leikjum í sænsku deildinni en gerði gömlu félögunum grikk í dag.
Kolbeinn skoraði tvennuna í jöfnum fyrri hálfleik. Heimamenn í Gautaborg voru mun betri eftir leikhlé en náðu ekki að bæta við forystuna.
Slóvakíska goðsögnin Marek Hamsik kom inn af bekknum í liði heimamanna á 75. mínútu. Hann er 33 ára gamall og gerði garðinn frægan hjá Napoli og með slóvakíska landsliðinu.
Frábær endurkoma hjá Kolbeini eftir meiðsli en Gautaborg er með fjögur stig eftir tvær umferðir. Liðið gerði markalaust jafntefli við Örebro í fyrstu umferð.
Athugasemdir