Mikel Arteta, stjóri Arsenal, var ótrúlega vonsvikinn eftir 2-1 tap liðsins gegn Manchester City í mikilvægum leik í titilbaráttunni á Englandi í dag.
Lærisveinar Arteta voru með sex stiga forystu á Man City fyrir leikinn og gátu nánast sett aðra hönd á titilinn með hagstæðum úrslitum úr leiknum.
Það tókst ekki og er Arsenal að ganga í gegnum mikla krísu síðustu vikur. Það datt úr leik í enska bikarnum, tapaði deildabikarúrslitum og er titilbaráttan nú galopin.
„Ég er augljóslega í miklu uppnámi með úrslitin. Við komum hingað til að vinna og skilaboðin voru mjög skýr. Við höfðum trú á því og sönnuðum að við erum þarna, en raunveruleikinn var hins vegar í teigunum tveimur. Það var munurinn í dag.“
„Ég hef enn trú því ég horfi á þá á hverjum degi og veit hvaða gæðum við búum yfir. Þeir töluðu um það inn í klefa eftir leik að þeir eru enn sannfærðari um það. Það er allt galopið og við vitum hversu mikið við viljum þetta og munum halda áfram að reyna.“
„Við lærum af því sem gerðist í dag og bætum okkur. Það er svo mjótt á mununum. Við settum boltann í stöng og þar spilar heppni inn í, tímasetning og framkvæmd. Þetta féll ekki með okkur og við verðum bara að átta okkur á því.“
„Við erum auðvitað mjög vonsviknir og sérstaklega hvernig við gerðum þetta. Ég sagði við leikmennina 'Okei, við misstum af þessu tækifæri', en við fáum stærsta tækifærið í næstu fimm leikjum, þannig keyrum á þetta,“ sagði Arteta.
Man City getur komist upp fyrir Arsenal á miðvikudag þegar liðið mætir Burnley.



