Liverpool meðal félaga sem vilja Bowen - Juventus hefur áhuga á Jackson - Ederson orðaður við Man Utd
banner
   sun 19. apríl 2026 20:07
Brynjar Ingi Erluson
Guardiola: Arsenal er besta lið landsins
Mynd: EPA
Pep Guardiola, stjóri Manchester City, vildi ekki fara fram úr sér í viðtali eftir 2-1 sigurinn á Arsenal í dag, en hann segir liðið eiga svakalega erfiða dagskrá eftir. Hann viðurkenndi þó að þetta hafi gefið liðinu svakalega orku fyrir lokasprettinn.

Man City er aðeins þremur stigum frá toppnum eftir sigurinn á Arsenal og getur með sigri á miðvikudag tekið toppsætið af lærisveinum Mikel Arteta.

Guardiola hrósaði Arsenal fyrir frammistöðuna og sagði liðið það besta á Englandi.

„Já, við höldum áfram í vonina, en sannleikurinn er sá að við höfum átt hræðilega dagskrá og erum ekki á toppnum. Arsenal er besta lið deildarinnar til þessa, en nú eigum við áfram séns á að berjast fram að síðasta leik.“

Hann nefndi þá hvað honum fannst standa upp úr í leiknum og var svarið fremur einfalt.

„Að við höfum unnið gegn þessu liði. Það er ótrúleg barátta í þeim, en við fengum smá meðbyr og svo fengu þeir hann, en við tókum stigin þrjú.“

Er Man City með betri skriðþunga en Arsenal?

„Ég veit það ekki. Mér fannst Arsenal ekki vera á slæmum skriðþunga. Við vorum betri í enska deildabikarnum en þeir voru ótrúlega góðir í dag. Þeir komu hungraðir hingað eftir það tap en samt náðum við að vinna. Við vitum að þeir eru miklir keppnismenn, en það erum við líka.“

„Taflan lýgur ekki. Þeir hafa verið bestir, en ég vil bara óska mínum strákum til hamingju. Ekki samt tapa einbeitingunni því á miðvikudag spilum við leikinn sem við eigum inni og getum komist á toppinn með sigri. Það er það sem við verðum að gera, en það verður erfitt miðað við leikina sem við eigum eftir. Til dæmis Bournemouth úti, sama lið og vann á Emirates í síðustu viku og síðan Newcastle líka. Þetta verður svakalega erfitt,“
sagði Guardiola.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 36 24 7 5 68 26 +42 79
2 Man City 35 22 8 5 72 32 +40 74
3 Man Utd 36 18 11 7 63 48 +15 65
4 Liverpool 36 17 8 11 60 48 +12 59
5 Aston Villa 36 17 8 11 50 46 +4 59
6 Bournemouth 36 13 16 7 56 52 +4 55
7 Brighton 36 14 11 11 52 42 +10 53
8 Brentford 36 14 9 13 52 49 +3 51
9 Chelsea 36 13 10 13 55 49 +6 49
10 Everton 36 13 10 13 46 46 0 49
11 Fulham 36 14 6 16 44 50 -6 48
12 Sunderland 36 12 12 12 37 46 -9 48
13 Newcastle 36 13 7 16 50 52 -2 46
14 Leeds 36 10 14 12 48 53 -5 44
15 Crystal Palace 35 11 11 13 38 44 -6 44
16 Nott. Forest 36 11 10 15 45 47 -2 43
17 Tottenham 36 9 11 16 46 55 -9 38
18 West Ham 36 9 9 18 42 62 -20 36
19 Burnley 36 4 9 23 37 73 -36 21
20 Wolves 36 3 9 24 25 66 -41 18
Slapp
banner