Mourinho orðaður við Real Madrid - Curtis Jones til Aston Villa?
   sun 19. apríl 2026 18:15
Brynjar Ingi Erluson
Haaland vildi ekki vera með leikþátt - „Þá hefði hann kannski séð rautt“
Erling Braut Haaland
Erling Braut Haaland
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Erling Braut Haaland, hetja Manchester City gegn Arsenal í dag, sagði að Gabriel hefði mögulega átt að fá rautt spjald í 2-1 sigri City á Etihad í dag.

Haaland gerði sigurmark City um hálftíma fyrir leikslok eftir að hafa barist við Gabriel allan leikinn.

Hann var ánægður með að landa sigrinum og talaði þá sérstaklega um baráttuna við Gabriel.

„Ég var fremur ánægður og ætla bara alveg að vera heiðarlegur með það. Þetta var frábært augnablik fyrir mig og frábær sigur hjá liðinu.“

„Þetta er alltaf svona. Endalaus slagsmál og svoleiðis. Það verða samt aðrir að dæma um það hvort ég hafi unnið bardagann eða ekki. Ég skoraði auðvitað markið og vann bardagann þegar það skipti máli, en fyrirgjöfin var fullkomin. Þetta var frábært mark sem skilaði okkur sigrinum,“
sagði Haaland.

Gabriel var heppinn að sjá ekki rautt á 83. mínútu er hann og Haaland fóru haus í haus. Gabriel var meira ógnandi þar og skallaði Haaland sem lét sig þó ekki detta og telur hann það hafi verið möguleg ástæða fyrir því að hann hafi ekki fengið rautt.

„Ef ég hefði látið mig detta, sem ég geri ekki nema það sé ráðist á mig, þá hefði þetta kannski verið rautt spjald. Ég er ekki viss og hef ekki séð atvikið aftur, en það er bara eins og það er. Ég mun ekki láta mig detta. Ég hef ekki hugmynd um það af hverju hann fór í andlitið á mér.“

Hann hrósaði þá Bernardo Silva í hástert fyrir frammistöðuna sem hann bauð upp á í leiknum.

„Ég sagði honum þegar hann skallaði fyrirgjöfina frá og vann Gyökeres í einvíginu að hann væri eins og fokking Cannavaro. Ég ætla ekki að hafa þetta tilfinningaþrungið í dag Bernie, en þú varst stórkostlegur.“

Á miðvikudag mætir Man City fallbaráttuliði Burnley en þar getur Man City tekið toppsætið.

„Hver einasti leikur er úrslitaleikur. Á miðvikudag spilum við annan úrslitaleik. Þegar við erum búnir að ræða málin hér förum við beint í endurheimt fyrir Burnley-leikinn því hann er alveg jafn mikilvægur og þessi leikur. Við verðum að halda einbeitingu og vera hógværir,“ sagði Haaland, sem virtist vera að skjóta lúmsku skoti á Arsenal með lokaorðum sínum.
Slapp
banner
banner